Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

2. september 2024

Útgáfudagur

19. september 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1055/2024

2. september 2024

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Haítí, nr. 55/2023.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1804 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2022/2319 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 1.3.
2.3 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1803 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/2309 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 2.3.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 19. september 2024

Tengd mál