Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarrn

Málaflokkur

Sjávarútvegur

Undirritunardagur

4. júlí 2019

Útgáfudagur

18. júlí 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 679/2019

4. júlí 2019

REGLUGERÐ

um þorskígildisstuðla fyrir fiskveiðiárið 2019/2020, skv. 19. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

1. gr.

Þorskígildisstuðlar hafa verið ákvarðaðir, sbr. 19. gr. laga nr.116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2019 til 31. ágúst 2020 eru sem hér segir:

Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar
Beitukóngur 0,47 Innfjarðarækja 1,09 Skrápflúra 0,37
Blágóma 0,23 Ígulker 0,51 Skötuselur 1,81
Blálanga 0,65 Íslensk sumargotssíld 0,13 Slétti langhali 0,24
Búrfiskur 0,00 Keila 0,39 Smokkfiskur 0,09
Dílamóri 0,00 Kræklingur 0,02 Snarphali 0,17
Djúpkarfi 0,84 Kúfskel 0,30 Spærlingur 0,08
Geirnyt 0,02 Langa 0,70 Steinbítur 0,59
Gjölnir 0,29 Langlúra 0,59 Stinglax 0,69
Grálúða 2,27 Litla brosma 0,20 Stóra brosma 0,13
Grásleppa 0,90 Litli karfi 0,35 Sæbjúga 0,25
Grjótkrabbi/klettakrabbi 0,50 Loðna 0,13 Tindaskata 0,08
Gulldepla 0,00 Lúða 1,68 Trjónukrabbi 0,66
Gullkarfi 0,69 Lýr 0,32 Túnfiskur 1,38
Gulllax 0,39 Lýsa 0,40 Ufsi 0,55
Háfur 0,29 Náskata 0,15 Urrari 0,11
Hákarl 0,13 Rauðmagi 0,53 Úthafsrækja 1,24
Hámeri 0,76 Rækja við Snæfellsnes 1,28 Vogmær 0,09
Hlýri 0,77 Sandhverfa 4,23 Ýsa 1,00
Humar (slitinn) 9,20 Sandkoli 0,27 Þorskur 1,00
Hvítskata 0,09 Skarkoli 0,94 Þykkvalúra/sólkoli 1,39
Hörpudiskur 0,34 Skata 0,28 Öfugkjafta 0,79

Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2020 eru sem hér segir:

Tegund Stuðlar
Kolmunni 0,09
Makríll 0,20
Norður-Íshafsþorskur 1,00
Norsk-íslensk síld 0,15
Rækja á Dohrnbanka 0,00
Rækja á Flæmingjagrunni 0,00
Úthafskarfi 0,71

3. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. 19. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Erna Jónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2019

Tengd mál