Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
17. september 2021
Útgáfudagur
4. október 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1111/2021
17. september 2021
REGLUR
um ferla og sniðmát fyrir sendingu upplýsinga til ESMA.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um ferla og sniðmát fyrir sendingar Fjármálaeftirlitsins á upplýsingum til ESMA (Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar), sbr. 120. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021.
2. gr. Sendingar Fjármálaeftirlitsins á upplýsingum til ESMA.
Þegar Fjármálaeftirlitið sendir upplýsingar til ESMA varðandi þau atriði sem talin eru upp í 120. gr. laganna skal það fara eftir ákvæðum framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212 frá 25. júlí 2016, sbr. 3. gr. þessara reglna.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212 frá 25. júlí 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlað verklag og eyðublöð fyrir framlagningu upplýsinga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 þann 23. mars 2018, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 49-50. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1212 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42, þann 25. júní 2020, bls. 84-89.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar eru settar með heimild skv. 16. tl. 2. mgr. 134. gr. laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 17. september 2021.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig
Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 4. október 2021