Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
7. júlí 2026
Útgáfudagur
8. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 783/2026
7. júlí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Nýtt deiliskipulag – Hraun vegna Stapahrauns 8-10 og Flatahrauns 27.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 28. janúar 2026 deiliskipulagið Hraun vegna Stapahrauns 8-10 og Flatahrauns 27. Skipulagið felst í að heimiluð er stækkun á byggingarreitum lóðanna. Á lóðinni nr. 8 við Stapahraun er gert ráð fyrir að viðbygging hýsi lager og á nr. 10 er gert ráð fyrir að viðbygging verði stækkun á núverandi verkstæðissal og geymslurými. Á Flatahrauni 27 er gert ráð fyrir að viðbygging hýsi vinnusal og vörumóttöku.
Málsmeðferð var skv. 41. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 7. júlí 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026