Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innanríkisráðuneytið (2011-2017)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

27. febrúar 2017

Útgáfudagur

14. mars 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 211/2017

27. febrúar 2017

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um upplýsingaþjónustu flugmála, nr. 772/2010.

1. gr.

Við 10. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerðir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 73/2010 frá 26. janúar 2010 um kröfur um gæði flugmálagagna og flugmálaupplýsinga fyrir samevrópska loftrýmið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, 15. október 2015, bls. 1824.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1029/2014 frá 26. september 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 73/2010 um kröfur um gæði flugmálagagna og flugmálaupplýsinga fyrir samevrópska loftrýmið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, 15. október 2015, bls. 1846.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 27. febrúar 2017.

F. h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

B deild - Útgáfud.: 14. mars 2017

Tengd mál