Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni
Undirritunardagur
22. mars 2016
Útgáfudagur
11. apríl 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 299/2016
22. mars 2016
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, l-liður, sem orðast svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1221 frá 24. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 303/2015, þann 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 28. janúar 2016, bls. 715-728.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1221 frá 24. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. mars 2016.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
B deild - Útgáfud.: 11. apríl 2016