Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Reykjavík, Umferðarmál
Undirritunardagur
22. janúar 2026
Útgáfudagur
5. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 113/2026
22. janúar 2026
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.
Samgöngustjóri hefur, í samræmi við 2. gr. viðauka 2.7 um embættisafgreiðslur samgöngustjóra, við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar nr. 1020/2019, sbr. 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd Reykjavíkurborgar:
- Að óheimilt verði að leggja ökutækjum í snúningshaus við Naustabryggju 19-21 og 24-26.
- Að eitt bifreiðastæði við Hólmgarð 41 verði merkt sem stæði fyrir hreyfihamlaðan einstakling.
Ofangreindar ráðstafanir verði merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum, í samræmi við reglugerð nr. 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
Reykjavík, 22. janúar 2026.
Skrifstofu stjórnsýslu og gæða, umhverfis- og skipulagssviðs,
Dagný Alma Jónasdóttir lögfræðingur.
B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026