Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar, Áfengismál
Undirritunardagur
31. október 2017
Útgáfudagur
14. nóvember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 958/2017
31. október 2017
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 505/1998, um áfengisgjald, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Um endurgreiðslu áfengisgjalds til sendimanna erlendra ríkja við kaup á vörum innanlands fer eftir reglugerð nr. 957/2017, um endurgreiðslu virðisaukaskatts og áfengisgjalds til sendimanna erlendra ríkja.
2. gr.
Í stað orðanna „nr. 545/1990, um lækkun, niðurfellingu eða endurgreiðslu aðflutningsgjalda af vörum vegna endursendingar, eyðileggingar, rýrnunar, skemmda, vöntunar eða endursölu til útlanda o.fl., með síðari breytingum“ í 3. málsl. 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: nr. 630/2008, um ýmis tollfríðindi, með síðari breytingum.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 12. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 31. október 2017.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2017