Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Orkumál, Seltjarnarnes

Undirritunardagur

7. desember 2018

Útgáfudagur

28. desember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1266/2018

7. desember 2018

AUGLÝSING

um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.

1. gr.

Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237, 4. mars 2011 og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, húshitun 91 1,82 kr./m³
Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu 91 1,82 kr./m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til iðnaðar 91 1,82 kr./m³
Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Grunnur
Fast verð A: 15 mm og stærri 23 0,47 kr./dag

Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

3. gr.

5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð kr. 227.486
Umframgjald fyrir hús 300-1.000 m³ að stærð kr. 274 pr. m³
Umframgjald fyrir hús yfir 1.000 m³ að stærð kr. 183 pr. m³
1 rennslismælir á grind kr. 72.577

4. gr.

Aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. desember 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2018

Tengd mál