Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

21. febrúar 2024

Útgáfudagur

27. febrúar 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 11/2024

21. febrúar 2024

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 235/2024 um (23.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/579 frá 9. febrúar 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Matvælaráðuneytinu, 21. febrúar 2024.

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2024

Tengd mál