Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Kaldrananeshreppur

Málaflokkur

Hafnamál, Strandasýsla

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

14. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1717/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

Drangsneshafnar, Kaldrananeshreppi.

1. gr.

Af öllum skipum skal greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

2. gr.

Við ákvörðun hafnargjalda út frá stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu (bt) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju skal greiða bryggjugjald:

Bátar undir 20 bt, 8.500 kr. á mánuði.

Bátar yfir 20 bt, 12.700 kr. á mánuði.

Viðlegugjald, jullur, 2.450 kr. á mánuði.

4. gr.

Greiða skal 425 kr. kranagjald á hvert byrjað tonn.

5. gr.

Sorpgjald reiknast miðað við brúttótonnatölu skipa og báta og er eftirfarandi:

Mánaðargjald báta undir 20 bt er 2.450 kr.

Mánaðargjald báta yfir 20 bt er 3.650 kr.

Sorpgjald er samkvæmt samþykktri gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Kaldrananeshreppi, nr. 1712/2025.

6. gr.

Rafmagnssala til skipa fer eftir gjaldskrá Orkubús Vestfjarða ásamt umsýslugjaldi sem er 1 kr. á hverja kWst.

7. gr.

Skrifstofa Kaldrananeshrepps sér um innheimtu allra hafnargjalda. Á öll gjöld í gjaldskrá þessari leggst 24% vsk og séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu dráttarvexti á skuldina.

8. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Drangsneshöfn er sett með heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1811/2024.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Kaldrananeshrepps 10. desember 2025.

Drangsnesi, 10. desember 2025.

F.h. Kaldrananeshrepps,

Finnur Ólafsson oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026

Tengd mál