Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

12. september 2024

Útgáfudagur

30. september 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1093/2024

12. september 2024

AUGLÝSING

um umferð í Reykjavík.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd borgarinnar:

  1. Að óheimilt verði að leggja í bílastæði við Hverfisgötu 4-6 þriðjudaga og föstudaga milli kl. 7 og 13 nema með leyfi lögreglu. Á öðrum tímum séu stæðin gjaldskyld í samræmi við gildandi samþykkt um gjaldskyldu á svæðinu.

Jafnframt hefur samgöngustjóri, í samræmi við 2. gr. viðauka 2.7 um embættisafgreiðslur samgöngustjóra, við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar nr. 1020/2019, sbr. 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd Reykjavíkurborgar:

  1. Að eitt bifreiðastæði við Hofteig 21 verði merkt sem stæði fyrir hreyfihamlaðan einstakling.
  2. Að óheimilt verði að leggja ökutækjum í austurkanti Þverholts við nr. 15 og 13.
  3. Að óheimilt verði að leggja ökutækjum beggja vegna Steinbryggju.

Ofangreindar ráðstafanir verði merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum, í samræmi við reglugerð nr. 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Reykjavík, 12. september 2024.

Skrifstofu stjórnsýslu og gæða, umhverfis- og skipulagssviðs,

Harpa Fönn Sigurjónsdóttir lögfræðingur.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2024

Tengd mál