Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
ISAVIA ohf.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Keflavíkurflugvöllur
Undirritunardagur
16. janúar 2026
Útgáfudagur
30. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 69/2026
16. janúar 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulagsbreytingu á vestursvæði Keflavíkurflugvallar.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti 17. desember 2025 breytingu á deiliskipulagi á vestursvæði Keflavíkurflugvallar.
Deiliskipulagsbreytingin felst í því að skilgreind er ný lóð undir vatnsöflun svo tryggja megi nægilegt slökkvi- og neysluvatn fyrir flugstöðvarsvæðið, um er ræða allt að þrjá 2.000 m³ tanka. Þá er lóðastærðum við Smyrilvöll breytt og þeim fjölgað úr tveimur í fjórar í því skyni að auka framboð á minni lóðum á flugþjónustusvæðinu.
Einnig hefur nýtt svæði verið skilgreint fyrir allt að 300 bílastæði samfara áframhaldandi uppbyggingu flugvallarins. Auk þessa eru uppfærðir skilmálar í gildandi deiliskipulagi; annars vegar vegna auglýsingaskiltis í nálægð við Reykjanesbraut og hins vegar vegna minniháttar tilfærslu á þegar skilgreindri lóð undir spennistöð við Súluvöll.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við ákvæði 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar, 16. janúar 2026.
Björn Ingi Edvardsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026