Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
13. júní 2025
Útgáfudagur
30. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 724/2025
13. júní 2025
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 2. áfanga, vegna Hádegisskarðs 22.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 4. júní 2025 breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 2. áfanga, vegna Hádegisskarðs 22. Breytingin felur í sér fjölgun íbúða úr tveimur í þrjár og a.m.k. eitt bílastæði fyrir hverja íbúð. Byggingarmagn helst óbreytt. Þakgerð verði einhalla með hæsta punkt til suðurs og/eða flatt þak. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 13. júní 2025.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi á tæknisviði.
B deild - Útgáfud.: 30. júní 2025