Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

10. janúar 2018

Útgáfudagur

11. janúar 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 14/2018

10. janúar 2018

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að tilkynningu um hvaða félag í samstæðunni annist skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu (RSK 4.31) fyrir hönd samstæðunnar, skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2018. Tilkynningunni skal skilað á netfangið milliverdlagning@rsk.is.

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið milliverdlagning@rsk.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 10. janúar 2018.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2018

Tengd mál