Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

19. maí 2021

Útgáfudagur

4. júní 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 44/2021

19. maí 2021

LÖG

um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (innleiðing, endurbótaáætlanir).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Í stað orðanna „hæfu fjármagni“ í 29. tölul. 1. mgr. 1. gr. a laganna kemur: þætti 1, sbr. 84. gr. a, 84. gr. b og 85. gr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „hæfu fjármagni“ fimm sinnum í greininni kemur: þætti 1.
  2. Í stað tilvísunarinnar „84. gr., 84. gr. a – 84. gr. f og 85. gr.“ í 1. mgr. kemur: 84. gr. a, 84. gr. b og 85. gr.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 85. gr. laganna:

  1. Við c-lið bætist: að frátöldum varfærnislega metnum hugbúnaðareignum sem falla ekki í virði vegna skila- eða slitameðferðar fjármálafyrirtækis.
  2. Við bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

    1. hluta fjárhæðar vegna áhættuskuldbindinga í vanskilum sem hvorki hefur verið mætt með varúðarniðurfærslum né telst nægjanlega tryggður að því marki sem greinir í reglugerð sem ráðherra setur á grundvelli 117. gr. a,
    2. mismun á núvirði ábyrgðar sem fyrirtækið hefur veitt á virði hlutdeildarskírteina og hluta í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu annars vegar og markaðsvirði hlutdeildarskírteinanna og hlutanna hins vegar hafi fyrirtækið ekki þegar greint frá rýrnun á almennu eigin fé þáttar 1 af þessum sökum.

4. gr.

Við 107. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita litlum og einföldum fjármálafyrirtækjum undanþágur frá upplýsingagjöf skv. 18. gr. og gagnaskilum skv. a-lið 2. mgr. 117. gr. b.

5. gr.

Við 116. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

IX. kafli A um endurbótaáætlun gildir ekki um Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 117. gr. b laganna:

  1. Orðið „og“ í lok c-liðar 2. mgr. og g-liðar 3. mgr. fellur brott.
  2. Við 2. mgr. bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

    1. verklag og form fyrir samráð viðeigandi lögbærra yfirvalda varðandi yfirtöku á virkum eignarhlutum, sbr. VI. kafla,
    2. útlistanir í tengslum við áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja, sbr. 78. gr. a – 78. gr. i.
  3. Við 3. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

    1. afmörkun á kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu, sbr. 52. gr. e.

7. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði 1.–4. gr. gildi 28. júní 2021.

Gjört í Reykjavík, 19. maí 2021.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.

A deild - Útgáfud.: 4. júní 2021

Tengd mál