Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Mosfellsbær
Undirritunardagur
3. júlí 2025
Útgáfudagur
18. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 823/2025
3. júlí 2025
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar, nr. 1225/2022.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á C- lið 59. gr. samþykktarinnar og breytist röð annarra töluliða til samræmis við hana:
- 3. tölul. orðast svo: Íþrótta-, menningar og lýðheilsunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
- 4. og 5. tölul. falla brott.
- 6. tölul. orðast svo: Skipulags- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
- 7. tölul. fellur brott.
2. gr.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur sett skv. 9. gr. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 3. júlí 2025.
F. h. r.
Guðni Geir Einarsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 18. júlí 2025