Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

17. apríl 2026

Útgáfudagur

5. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 438/2026

17. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Hrunamannahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Melar, L166840, staðfesting lóðarmarka, sameining byggingarreita, vegleið felld niður.

Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Mela, L166840. Í breytingunni felst að lóðamörk eru uppfærð til samræmis við samþykkt lóðarblöð, tveir byggingarreitir fyrir gróðurhús eru sameinaðir í einn og vegur sem áður lá milli Mela og Hrafnkelsstaða 2A verður lokaður og ný vegtenging fyrirhuguð vestan við lóð Mela.

Samþykkt í sveitarstjórn 18. desember 2025.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 17. apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi