Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Húsnæðismál

Undirritunardagur

20. júní 2025

Útgáfudagur

4. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 768/2025

20. júní 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 183/2020.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar „398.000 kr.“ kemur: 409.000 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „9.200.000 kr.“ kemur: 9.400.000 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „15.800.000 kr.“ kemur: 16.300.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 10. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 27. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 20. júní 2025.

Inga Sæland.

Ásdís Halla Bragadóttir.

B deild — Útgáfudagur: 4. júlí 2025

Tengd mál