Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flutningar, Samgöngumál, Fólksflutningar
Undirritunardagur
9. mars 2020
Útgáfudagur
27. mars 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 266/2020
9. mars 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 474/2017, um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
1. gr. Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um tímabundnar ráðstafanir sem gilda um vöruflutninga á vegum milli Evrópska efnahagssvæðisins og Bretlands í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
2. gr. Innleiðing.
Við 20. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1795 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2019/501 og (ESB) 2019/502 að því er varðar gildistíma þeirra frá 24. október 2019, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 272/2019 frá 31. október 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 101, frá 19. desember 2019, bls. 201-203.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 11. gr., sbr. 34. gr. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 9. mars 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Sóley Ragnarsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 27. mars 2020