Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
2. júní 2017
Útgáfudagur
19. júní 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 541/2017
2. júní 2017
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 113. gr. reglnanna:
- 4. málsl. 7. mgr. fellur brott.
- Á eftir núverandi 6. málsl. 7. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nánar er kveðið á um þetta í námsskipunarreglum einstakra námsleiða deildarinnar.
- Í lok 2. málsl. 8. mgr. bætast við orðin: og a.m.k. 10 eininga lokaverkefni.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 2. júní 2017.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 19. júní 2017