Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Menningarmál
Undirritunardagur
13. maí 2025
Útgáfudagur
16. maí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 512/2025
13. maí 2025
REGLUGERÐ
um listamannalaun.
1. gr. Hlutverk.
Hlutverk launasjóðs hönnuða, launasjóðs myndlistarmanna, launasjóðs rithöfunda, launasjóðs sviðslistafólks, launasjóðs tónlistarflytjenda, launasjóðs tónskálda, launasjóðs kvikmyndahöfunda og Vegsemdar, sjóðs fyrir listamenn 67 ára og eldri, er að veita listamönnum starfslaun og styrki samkvæmt lögum um listamannalaun nr. 57/2009 og reglugerð þessari. Ákvarðanir um veitingu framlaga úr sjóðum þessum skulu gegna þeim tilgangi að efla listsköpun í landinu.
2. gr. Launasjóðir.
Starfslaun listamanna skulu veitt úr átta sjóðum:
a. launasjóði hönnuða,
b. launasjóði myndlistarfólks,
c. launasjóði rithöfunda,
d. launasjóði sviðslistafólks,
e. launasjóði tónlistarflytjenda,
f. launasjóði tónskálda,
g. launasjóði kvikmyndahöfunda,
h. Vegsemd, sjóði fyrir listamenn 67 ára og eldri.
Auk starfslauna er sjóðunum heimilt að veita ferðastyrki.
3. gr. Stjórn og úthlutunarnefndir.
Yfirumsjón með sjóðunum skv. 1. gr. er í höndum stjórnar listamannalauna. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipar þrjá menn í stjórn listamannalauna til þriggja ára í senn, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra listamanna, einn samkvæmt tilnefningu Listaháskóla Íslands og einn án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi aðalmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ekki er heimilt að skipa sama mann aðalmann í stjórn listamannalauna lengur en tvö samfelld starfstímabil.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipar árlega og eigi síðar en 15. júní sérstakar þriggja manna úthlutunarnefndir; eina fyrir launasjóð hönnuða skv. tilnefningu samtaka hönnuða og arkitekta, eina fyrir launasjóð myndlistarmanna skv. tilnefningu Sambands íslenskra myndlistarmanna, eina fyrir launasjóð sviðslistafólks skv. tilnefningu Sviðslistasambands Íslands, eina fyrir launasjóð tónlistarflytjenda skv. tilnefningu Félags íslenskra hljómlistarmanna og Félags íslenskra tónlistarmanna, eina fyrir launasjóð tónskálda skv. tilnefningu Tónskáldafélags Íslands og Félags tónskálda og textahöfunda og eina fyrir launasjóð kvikmyndahöfunda skv. tilnefningu Samtaka kvikmyndaleikstjóra og Félags leikskálda og handritshöfunda.
Úthlutunarnefndir veita fé úr framangreindum sjóðum, sbr. 6.-11.gr. laga nr. 57/2009.
Tilnefningum af hálfu tilnefningaraðila skal hagað þannig að á aðalfundi eða formlega boðuðum félagsfundi er ákveðið hvernig staðið skuli að tilnefningu. Við tilnefningu skal leitast við að tryggja sem jafnastan hlut karla og kvenna í úthlutunarnefndum og þess skal gætt að sami aðili verði ekki tilnefndur oftar en þrjú ár í röð.
Í yfirumsjón stjórnar listamannalauna á sjóðunum felst að úthlutunarákvarðanir úthlutunarnefndar eru háðar því að stjórn listamannalauna staðfesti að skilyrðum um starfslaun sé fylgt.
4. gr. Stefnumörkun.
Stjórn listamannalauna gerir tillögu til Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stefnu og áherslur við úthlutun listamannalauna til þriggja ára í senn.
5. gr. Auglýsing eftir umsóknum.
Stjórn listamannalauna sér til þess að auglýst sé með tryggilegum hætti eftir umsóknum um veitingu starfslauna og ferðastyrkja úr sjóðunum.
Í auglýsingu skal óska eftir upplýsingum um feril umsækjanda, listrænt gildi verkefnisins og verk- og tímaáætlun. Umsókn skal fylgja hnitmiðuð greinargerð um fyrirhugaða vinnu og verkefni það sem liggur til grundvallar og hve langan starfstíma sótt er um. Einnig skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil svo og verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir skulu að jafnaði liggja til grundvallar ákvörðun um úthlutun starfslauna. Sé sótt um ferðastyrk skal gera á skýran hátt grein fyrir tilgangi ferðarinnar. Stjórn listamannalauna ákveður að öðru leyti og tiltekur í auglýsingu hvaða upplýsingar skulu fylgja umsóknum.
Ákveði stjórn listamannalauna að leggja sérstaka áherslu á tiltekna þætti við mat á umsóknum skal gerð grein fyrir því í auglýsingu.
Auglýst skal eftir umsóknum eigi síðar en 1. október ár hvert og skal umsóknarfrestur að jafnaði vera eigi skemmri en sex vikur. Miðað skal við að úthlutun starfslauna listamanna verði tilkynnt fyrir 1. mars ár hvert.
6. gr. Meðferð umsókna.
Stjórn listamannalauna er heimilt að færa umsóknir á milli sjóða telji hún að umsókn eigi betur heima í öðrum sjóði en þeim sem sérstaklega er sótt til miðað við inntak verkefnis.
Við veitingu starfslauna og styrkja úr öllum sjóðum skulu úhlutunarnefndir gæta þess vandlega að allar umsóknir fái sanngjarna umfjöllun og ákvarðanir séu ávallt reistar á faglegum sjónarmiðum.
7. gr. Skilyrði og skyldur starfslauna- og styrkþega.
Fullt starf í skilningi þessara laga miðast við 67% starf eða meira. Ef ljóst þykir að það hindri ekki listamanninn í því að sinna þeirri vinnu sem starfslaunin voru veitt til þá geta þeir sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur gegnt öðru starfi sem teldist að jafnaði þriðjungur úr stöðugildi á meðan þeir fá greidd starfslaun.
Allir þeir sem njóta starfslauna skulu skila greinagóðri skýrslu um störf sín á starfslaunatímanum eigi síðar en ári eftir að honum lýkur. Þeir sem hljóta starfslaun í 18 mánuði eða lengur skulu skila skýrslu árlega.
Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun skal umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað fullnægjandi skýrslu um störf sín á starfslaunatímanum. Að öðru jöfnu skal starfslaunaþegi taka starfslaunin samfellt á meðan á starfslaunatíma stendur en heimilt er honum að fresta upphafi tímabilsins til september úthlutunarárið. Stjórn listamannalauna er heimilt að veita undanþágu frá töku samfelldra starfslauna vegna fæðingarorlofs, sbr. lög nr 95/2000 með áorðnum breytingum.
Hljóti listamaður úthlutun úr fleiri en einum launasjóði er aðeins hægt að fá greitt úr einum launasjóði í senn.
Sé úthlutun listamanns skert miðað við umsóttan fjölda mánaða er heimilt að dreifa greiðslum á umsóttan fjölda mánaða en þó ekki lengur en í 12 mánuði (úthlutunarárið) sækist listamaður eftir því.
8. gr. Lengd starfslauna.
Starfslaun skulu almennt veitt til 6, 9, 12, 18 eða 24 mánaða. Víkja má frá þessu og veita starfslaun til skemmri tíma en 6 mánaða, þó aldrei skemur en til þriggja mánaða. Heimilt er að úthluta starfslaunum til allt að 36 mánaða og allt til 5 ára í Vegsemd. Úthlutunarnefnd er ekki heimilt að verja hærri upphæð en sem nemur 10% þeirra sem hver sjóður hefur til úthlutunar árlega til styrkja í skemmri tíma en 6 mánuði svo og til ferðastyrkja. Ferðastyrkir skulu að öllu jöfnu nema einum mánaðarlaunum.
Miðað skal við að fjórðungur heildarstarfslauna hvers sjóðs verði að jafnaði veittur til listamanna er taka laun í eitt ár eða meira þar sem slíkt gefur listamönnum betra tækifæri til að helga sig listsköpun sinni.
9. gr. Niðurfelling og endurgreiðsla.
Komi í ljós að listamaður, sem hlotið hefur starfslaun til lengri tíma en sex mánaða, sinni ekki því verkefni sem liggur til grundvallar úthlutun er stjórn listamannalauna heimilt að fella niður starfslaun. Í slíkum tilvikum er stjórninni heimilt að krefja listamanninn um endurgreiðslu greiddra starfslauna.
Við meðferð mála samkvæmt þessari grein skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
10. gr. Þóknun til stjórnar og úthlutunarnefnda.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ákveður þóknun til stjórnarmanna og fulltrúa í úthlutunarnefndum sem greiðist af fé sjóðanna.
11. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. gr. laga um listamannalaun, nr. 57/2009, og öðlast þegar gildi. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 834/2009.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 13. maí 2025.
Logi Már Einarsson.
Arna Kristín Einarsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 16. maí 2025