Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál

Undirritunardagur

19. nóvember 2020

Útgáfudagur

30. nóvember 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1186/2020

19. nóvember 2020

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr. Innleiðing.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/158 frá 5. febrúar 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 að því er varðar innbyggðan vigtunarbúnað.

2. gr.

Með reglugerð þessari er innleidd framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2020/158 frá 5. febrúar 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 að því er varðar innbyggðan vigtunarbúnað sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29.10.2020, bls. 608-609.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 54. og 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. nóvember 2020.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Jónas Birgir Jónasson.

B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2020

Tengd mál