Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál, Loftslagsmál

Undirritunardagur

31. mars 2026

Útgáfudagur

1. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 328/2026

31. mars 2026

REGLUGERÐ

um (11.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

1. gr.

Við 32. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/873 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/331 að því er varðar umbreytingarreglur á vettvangi Sambandsins um samræmda úthlutun losunarheimilda án endurgjalds, sem vísað er til í tölulið 21all í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 1-35.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2441 frá 31. október 2023 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar innihald og snið loftslagshlutleysisáætlana sem þörf er á vegna úthlutunar losunarheimilda án endurgjalds, sem vísað er til í tölulið 21alw í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. apríl 2024, bls. 82-121.

2. gr.

Við 2. mgr. 33. gr. a. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/723 frá 6. febrúar 2025 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur um árlegan útreikning á verðmun milli flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir og jarðefnasteinolíu og um úthlutun losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna notkunar á flugvélaeldsneyti sem uppfyllir viðmiðanir, sem vísað er til í tölulið 21apo í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 501-509.

3. gr.

1. málsl. 1. mgr. 34. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 5. gr., 6. mgr. 9. gr., 7. mgr. 10. gr., 4. mgr. 11. gr., 22. gr., 23. gr., 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða III laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtöldum gerðum:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/873 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/331 að því er varðar umbreytingarreglur á vettvangi Sambandsins um samræmda úthlutun losunarheimilda án endurgjalds, sem vísað er til í tölulið 21all í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2025 frá 8. maí 2025.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2441 frá 31. október 2023 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar innihald og snið loftslagshlutleysisáætlana sem þörf er á vegna úthlutunar losunarheimilda án endurgjalds, sem vísað er til í tölulið 21alw í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2025 frá 8. maí 2025.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/723 frá 6. febrúar 2025 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur um árlegan útreikning á verðmun milli flugvélaeldsneytis sem uppfyllir viðmiðanir og jarðefnasteinolíu og um úthlutun losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna notkunar á flugvélaeldsneyti sem uppfyllir viðmiðanir, sem vísað er til í tölulið 21apo í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2025 frá 19. september 2025.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. mgr. 10. gr., 4. mgr. 11. gr., 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða III laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 31. mars 2026.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Magnús Örn Agnesar Sigurðsson.

B deild — Útgáfudagur: 1. apríl 2026

Tengd mál