Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húnabyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Húnavatnssýslur

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

30. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1699/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

úrgangsmála í fyrrum Skagabyggð, Húnabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur ákveðið að hækkun á gjaldskrá úrgangsmála fyrrum Skagabyggðar verði 4,95% samkvæmt árshækkun neysluverðsvísitölu.

2. gr. Íbúðarhúsnæði.

Úrgangur frá íbúðarhúsnæði skal flokkaður í sjö flokka og er að lágmarki greitt gjald fyrir grunneiningu þriggja íláta við lögheimili. Grunneiningin samanstendur af ílátum fyrir plastefni, pappír og pappa og blandaðan heimilisúrgang. Til viðbótar skal safna lífrænum úrgangi, gleri, málmum og textíl.

Íbúar með fasta búsetu geta fengið moltugerðartunnu hjá sveitarfélaginu til þess að jarðgera lífrænan úrgang. Gleri og málmum verða íbúar að skila í grenndargáma á vegum sveitarfélagsins.

Gjöldin greiðast árlega sem hér greinir:

Sorphirðugjald verður innheimt eftir núverandi kerfi samhliða fasteignaskatti á árinu 2025. Hægt verður að sækja um að skipta um stærðir á tunnum á árinu en nýtt gjald verður ekki innheimt fyrr en samhliða fasteignaskatti á árinu 2026. Innheimt verður breytingargjald (sjá 3. gr.) þegar óskað er eftir breytingu á skráningu. Einnig er innheimt tunnugjald og útkeyrslugjald við afhendingu nýrra tunna ef skipt er milli stærða. Sé tunnu skipt út fyrir aðra stærð er eldri tunna tekin upp í nýja tunnu, sé þess óskað, enda sé hún óskemmd. Verð eldri tunnu miðast við verð á nýrri tunnu að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því notkun hófst.

Komi íbúar sér saman um að heimili megi samnýta ílát er fast gjald 52.380 kr. á lögheimili sem fær leyfi til samnýtingar. Umsýslugjald vegna breytinga er 3.670 kr.

Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignaskatti. Gjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

Einstakir gjaldaliðir eru sem hér segir:

Samnýting íláta 53.010 kr.
Blandaður úrgangur 140 l 21.450 kr.
Blandaður úrgangur 240 l 29.250 kr.
Blandaður úrgangur 360 l 52.570 kr.
Blandaður úrgangur 660 l 100.000 kr.
Lífúrgangur 140 l 0 kr.
Pappi og pappír 140 l 11.110 kr.
Pappi og pappír 240 l 11.540 kr.
Pappi og pappír 360 l 26.290 kr.
Pappi og pappír 660 l 51.300 kr.
Plast 140 l 11.110 kr.
Plast 240 l 11.540 kr.
Plast 360 l 26.290 kr.
Plast 660 l 51.300 kr.
Rekstur grenndar- og söfnunarstöðva 50.890 kr.
Rekstur grenndar- og söfnunarstöðva, frístundahús 30.790 kr.
Rekstur grenndar- og söfnunarstöðva, fyrirtæki 106.020 kr.

3. gr. Aðrir gjaldaliðir (önnur gjöld).

Ef sorptunna/ílát skemmist eða hverfur vegna þess að það hefur ekki verið gengið nægilega vel frá því, t.d. undir skýli eða festingar vantar verður innheimtur raunkostnaður á hverja tunnu/ílát samkvæmt reikningi frá verktaka.

Sorptunnur/ílát sem geymd eru utanhúss skulu standa á fastri undirstöðu og vera þannig staðsett að aðgangur að þeim sé greiður og af þeim geti ekki stafað óþægindi eða óþrifnaður fyrir umhverfið, sbr. 15. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs nr. 803/2023.

Tunnugjald/ílátagjald og útkeyrslugjald greiðist við afhendingu nýrra tunna/íláta og ef skipt er milli stærða. Sé tunnu/íláti skipt út fyrir aðra stærð er eldri tunna/ílát tekið upp í nýtt, enda sé það óskemmt. Verð eldri tunnu/íláts miðast við verð á nýju að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því notkun hófst.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu er 3.710 kr. í hvert sinn sem óskað er breytinga. Á þetta við um breytingu á ílátum/tunnum, viðbótarílát eða breytta skráningu svo sem eins og samnýtingu á tunnum/ílátum.

4. gr. Íbúðarhús án lögheimilisfesti og sumarhús/frístundahús.

Gjald fyrir íbúðarhús án lögheimilisfesti og sumarhús/frístundahús sem ekki hafa grunneiningu sorpíláta, heldur aðgang að grenndarstöð er 30.790 kr. fyrir meðhöndlun úrgangs.

5. gr.

Gjalddagar sorphirðu- og sorpurðunargjalds skv. 2. gr. skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

Gjöld fyrir meðhöndlun og urðun úrgangs í fyrrum Skagabyggð er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign án tillits til eigendaskipta. Gjöldin njóta lögveðsréttar í fasteign næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

Innifalin í gjaldinu er móttaka á öllum sjö flokkum heimilisúrgangs í þar til gerð söfnunarílát á vegum sveitarfélagsins.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 552/2024. Samþykkt í sveitarstjórn Húnabyggðar 15. desember 2025.

Blönduósi, 15. desember 2025.

Pétur Arason sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026

Tengd mál