Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innanríkisráðuneytið (2011-2017)

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Kópavogur

Undirritunardagur

14. ágúst 2013

Útgáfudagur

28. ágúst 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 774/2013

14. ágúst 2013

SAMÞYKKT

um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni bæjarfélagsins.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 11 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum bæjarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Kópavogsbær er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa bæjarfélagsins.

3. gr.

Verkefni Kópavogsbæjar.

Kópavogsbær annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Kópavogsbær vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Kópavogsbæ er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um bæjarstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. síðari breytingar, annarra laga og samþykkt þessari,

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna bæjarfélagsins.

Bæjarstjórn fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum bæjarfélagsins.
  2. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá bæjarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan bæjarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður bæjarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi bæjarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald bæjarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum bæjarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem bæjarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Að staðfesta erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf til starfsmanna í þeim tilvikum þar sem þeim er framselt fullnaðarákvörðunarvald.

6. gr.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnarinnar eða bæjarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör forseta og varaforseta.

Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og tvo varaforseta. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn. Njóti forseti eða varaforseti ekki lengur stuðnings meirihluta bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa fyrsta og annan varaforseta til að gegna, í þeirri röð, störfum forseta í forföllum hans. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og forseta.

III. KAFLI

Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar nema júlí og ágúst, er halda skal aðeins einn fund og þá þriðja þriðjudag hvors mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00 í bæjarstjórnarsal að Fannborg 2.

Aukafundi skal halda þegar forseti eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjarstjórnar vegna sumarleyfis.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri, sbr. þó 2. mgr. 6. gr., boðar bæjarstjórnarfundi.

Fundarboð skal berast bæjarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

10. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Forsætisnefnd, sem skipuð er forseta bæjarstjórnar og varaforsetum, semur dagskrá bæjarstjórnarfundar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og helstu stjórnendur bæjarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og forsætisnefnd ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarstjóri eða bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það forsætisnefnd skriflega fyrir fastan fundartíma nefndarinnar, næstan á undan bæjarstjórnarfundi, til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem forsætisnefnd eða bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar. Dagskrá skal send út bréflega eða með rafrænum hætti.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum Kópavogsbæjar með tryggum hætti.

Íbúum bæjarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu bæjarfélagsins um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um bæjarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir bæjarstjórnar.

Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn bæjarfélagsins séu viðstaddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé viðstaddur á fundi. Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Skrifarar og fundarritari.

Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn. Bæjarstjórn getur falið skrifurum og forseta að ganga frá og undirrita fundargerð hið fyrsta að loknum fundi.

Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar.

15. gr. Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til bæjarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

16. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

I. Fundarsköp.

  1. Fundarstjórn. Forseti stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar, í samræmi við sérstakar reglur sem bæjarstjórn setur um ræðutíma. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar, sbr. 2. mgr. 14. gr. samþykktar þessarar, og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta. Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
    Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
  2. Vald forseta. Skylt er bæjarstjórnarmanni að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema bæjarstjórn eða forseti ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
  5. Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða bæjarstjóra eða framsögumann svo og bæjarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti í hvaða röð þeir tala.
    Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta.
    Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða. Ekki má lesa prentað mál nema forseti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls, en ótakmarkað þegar til umræðu er fjárhagsáætlun og tillaga að aðalskipulagi. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Bæjarstjórn setur sérstakar reglur um ræðutíma. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli og ber að verða við beiðni um slíkt. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.

II. Ritun fundargerða.

Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt einróma skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Um ritun fundargerða bæjarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna bæjarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í samþykkt þessari. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður bæjarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis bæjarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni bæjarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd bæjarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

18. gr.

Varamenn í bæjarstjórn.

Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Um varamenn fer að öðru leyti samkvæmt 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

19. gr.

Skyldur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum bæjarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.

Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

20. gr.

Réttur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni bæjarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.

Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu bæjarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn.

Beiðni um slíkt skal beint skriflega til skrifstofu bæjarfélagsins. Tiltaka skal í beiðninni hvaða gögnum óskað er eftir og/eða um hvaða málefni þau fjalla. Miða skal við að aðgangur sé veittur innan 5 daga frá móttöku beiðninnar.

Ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti almennings er bæjarfulltrúa einungis heimilt að kynna sér þau gögn á skrifstofunni, sbr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga og verklagsreglur um aðgengi bæjarfulltrúa að gögnum.

Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum bæjarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi bæjarfélagsins og rekstur.

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða
  2. veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar bæjarfulltrúi flytur úr bæjarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í bæjarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður eða tilkynna að hann muni boða sjálfur varamann í sinn stað. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.

25. gr.

Þóknun, starfsaðstaða o.fl.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar sem taki mið af reglum nr. 39/1992 um greiðslu ferðakostnaðar.

Bæjarfulltrúum skal séð fyrir sameiginlegri starfsaðstöðu á bæjarskrifstofum.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.

V. KAFLI

Bæjarráð.

27. gr.

Kosning bæjarráðs.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.

Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið.

28. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku og skal bæjarráð festa fundartíma ráðsins í upphafi skipunartíma þess, sbr. 47. gr. samþykktar þessarar.

Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

29. gr.

Boðun funda bæjarráðs.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs.

Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á um forföll.

Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

30. gr.

Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Framboðslista, sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði.

Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði skal vera aðalmaður í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga. Varaáheyrnarfulltrúi skal vera aðal- eða varamaður í bæjarstjórn.

32. gr.

Verkefni bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu bæjarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir bæjarstjórn.

Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála, nema lög mæli á annan veg.

33. gr.

Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varðar verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur innan ráðsins eða við bæjarstjóra um ákvörðunina. Verði ágreiningur um afgreiðslu mála í bæjarráði fer málið til afgreiðslu í bæjarstjórn og ber forseta að taka það þar til sérstakrar afgreiðslu.

Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka skv. fjárhagsáætlun, s.s. til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Bæjarráð fer með undirbúning og fullnaðarafgreiðslu kjörskrár, í umboði bæjarstjórnar, til alþingiskosninga, sveitarstjórnarkosninga, forsetakosninga og annarra kosninga. Beiðni um endurupptöku ákvörðunar er varðar kjörskrár skal beint til bæjarráðs.

Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

34. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum bæjarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

35. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta bæjarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem bæjarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í bæjarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

36. gr.

Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til nefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum og erindisbréfum sem bæjarstjórn setur.

Bæjarstjórn getur falið kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 47. gr. samþykktar þessarar, heimild til að afgreiða á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr., án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:

  1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
  2. þau varða ekki fjárhag bæjarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
  3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.

37. gr.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð.

38. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Ósk um opinn fund skal beina til formanns nefndar.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

39. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir bæjarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.

40. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

41. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

42. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Ennfremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

43. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í fastanefnd má tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í fastanefnd með málfrelsi og tillögurétt. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

44. gr.

Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur.

Áheyrnarfulltrúum þeirra framboða eða stjórnmálasamtaka sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn skal einnig greidd þóknun fyrir setu í allt að 5 nefndum og ráðum samtals, hverjum lista, enda hafi fulltrúi/ar þess lista ekki náð kjöri í viðkomandi nefnd í kosningum skv. 47. gr.

Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða öðrum áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins.

45. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

46. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem bæjarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem bæjarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem bæjarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi bæjarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

47. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem bæjarfélagið á aðild að.

A. Kosið til eins árs á fundi í júní ár hvert:

  1. Bæjarráð. Fimm bæjarfulltrúar sem aðalmenn skv. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 27. gr. samþykktar þessarar. Þeir aðal- og varafulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður, verði varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.
  2. Forseti og tveir varaforsetar bæjarstjórnar skv. 13. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
  3. Tveir skrifarar og tveir til vara úr hópi bæjarfulltrúa skv. 14. gr. samþykktar þessarar.

B. Kosið til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
  2. Atvinnu- og þróunarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið fer með atvinnu-, markaðs- og ferðamál.
  3. Barnaverndarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar skv. lögum nr. 80/2002.
  4. Brunabótafélag Íslands. Einn aðalmaður í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands og einn til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  5. Félagsmálaráð. Sjö aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálaráð fer jafnframt með hlutverk húsnæðisnefndar skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
  6. Forsætisnefnd. Skipuð forseta bæjarstjórnar og varaforsetum. Bæjarritari er starfsmaður nefndarinnar. Bæjarstjórn kýs að auki þrjá varamenn.
  7. Forvarna- og frístundanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  8. Framkvæmdaráð. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara, skv. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Framkvæmdaráð fer með mannvirkjagerð, eignarekstur, veitustarfsemi, samgöngumál og innkaup samkvæmt innkaupareglum Kópavogsbæjar.
  9. Hafnarstjórn. Aðalmenn til samræmis við ákvæði reglugerðar um Kópavogshöfn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
  10. Heilbrigðisnefnd. Tveir menn og tveir til vara skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
  11. Íþróttaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  12. Kjaranefnd. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara.
  13. Kjörstjórn við alþingiskosningar skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.

    1. Þrír menn í undirkjörstjórn og þrír til vara.
  14. Kjörstjórn við sveitarstjórnarkosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

    1. Hverfiskjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
    2. Undirkjörstjórn. Þrír menn og jafnmargir til vara.
  15. Leikskólanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
  16. Lista- og menningarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Stjórnin fer með menningarmál. Hún fer jafnframt með stjórn bókasafnsins skv. 8. gr. laga um bókasöfn nr. 150/2012, tónlistarhúss Kópavogs – Salarins, Tónlistarsafns Íslands, Listasafns Kópavogs – Gerðarsafns, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Lista- og menningarsjóðs.
  17. Jafnréttis- og mannréttindaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með mannréttinda-, lýðræðis- og jafnréttismál skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
  18. Reykjanesfólkvangur. Einn aðalmaður í nefnd um Reykjanesfólkvang og einn til vara.
  19. Skipulagsnefnd. Sjö aðalmenn og fimm til vara skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin fer jafnframt með ferlimál.
  20. Skólanefnd. Sjö aðalmenn og fimm til vara skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og samningi Kópavogsbæjar og menntamálaráðuneytis um skólahald á framhaldsskólastigi í Kópavogi frá 14. maí 1982.
  21. Stjórn Héraðsskjalasafns. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
  22. Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. gr. 4.1 í samþykktum um sjóðinn frá 1. september 2009.
  23. Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Einn aðalmaður og einn til vara.
  24. Stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins bs. Einn aðalmaður og annar til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 12. janúar 1988.
  25. Stjórn SSH. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 5. gr. samþykkta um SSH frá 6. nóvember 2009.
  26. Stjórn Strætó bs. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 5. gr. stofnsamnings frá 7. maí 2001.
  27. Stjórn Tónlistarskóla Kópavogs. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
  28. Stjórn Tónsala. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
  29. Umhverfis- og samgöngunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með umferðarmál skv. heimild í 2. mgr. 116. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og umhverfismál skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965 og 11. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
  30. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn fjóra aðalfulltrúa, auk eins aðalfulltrúa fyrir hvert byrjað tugþúsund íbúa umfram 10.000 til viðbótar. Varamenn eru kosnir jafnmargir aðalmönnum.

C. Í aðrar nefndir sem stofnaðar kunna að verða.

Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

VII. KAFLI

Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn bæjarfélagsins.

48. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni bæjarfélagsins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.

49. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri fer með daglega stjórn bæjarfélagsins og er æðsti yfirmaður annars starfsliðs þess. Hann skal sjá um að stjórnsýsla bæjarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.

Bæjarstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni bæjarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til.

Í forföllum bæjarstjóra gegnir bæjarritari störfum hans nema þau séu sérstaklega öðrum falin. Forfallist bæjarstjóri um lengri tíma, skal bæjarráð setja mann til að gegna störfum hans en þó aldrei lengur en þrjá mánuði í senn.

50. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Bæjarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu, svo sem yfirmenn sviða og forstöðumenn stofnana og fyrirtækja bæjarfélagsins og veitir þeim lausn frá starfi.

51. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Um ráðningu annarra starfsmanna annast bæjarstjóri, enda hafi bæjarstjórn ekki ákveðið annað í samþykkt þessari eða með almennum fyrirmælum.

52. gr. Framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Bæjarstjórn er heimilt að fela starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar. Heimild þessi skal sett í erindisbréf viðkomandi starfsmanna og í erindisbréf viðkomandi nefndar sem málið heyrir undir og staðfest er af bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmanna en viðkomandi fagnefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

Starfsmanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi fagnefndar til fullnaðarafgreiðslu.

53. gr.

Endurupptaka mála.

Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Beiðni um endurupptöku máls skal beina til bæjarráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.

Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur bæjarráð ákvörðun um málsmeðferð.

54. gr. Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn bæjarfélagsins og aðrir sem bæjarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

55. gr. Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLI

Fjármál bæjarfélagsins.

56. gr. Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.

Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál bæjarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar bæjarfélagsins,
  6. sölu eigna bæjarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

57. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri bæjarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir bæjarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana bæjarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

58. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 56. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu bæjarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu bæjarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.

59. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu bæjarfélagsins.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að bæjarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

60. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna bæjarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum bæjarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag bæjarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir bæjarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

61. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir bæjarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir bæjarfélagið, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur bæjarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings bæjarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning bæjarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

62. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá bæjarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

63. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 25% þeirra sem kosningarrétt eiga í bæjarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

64. gr.

Íbúavefur.

Kópavogsbær skal leitast við að hafa sem víðtækast samráð við íbúa bæjarins og miðla upplýsingum um starfsemi bæjarins með rafrænum hætti í gegnum vefinn kopavogur.is. Þar geti íbúar komið á framfæri ábendingum sínum.

65. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Kópavogsbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 538/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 14. ágúst 2013.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. ágúst 2013

Tengd mál