Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

22. mars 2018

Útgáfudagur

11. apríl 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 354/2018

22. mars 2018

AUGLÝSING

um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002 um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, með síðari breytingum, og fjárlög fyrir árið 2018 hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem hér segir:

a) Niðurgreiðsla á raforku til húshitunar:
á veitusvæði HS veitna 5,68 kr./kWst.,
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í dreifbýli 8,19 kr./kWst.,
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í þéttbýli 5,79 kr./kWst.,
á veitusvæði Rafveitu Reyðarfjarðar 5,12 kr./kWst.,
á veitusvæði RARIK í dreifbýli 8,71 kr./kWst.,
á veitusvæði RARIK í þéttbýli 5,27 kr./kWst.,
á veitusvæði Veitna ohf. 5,53 kr./kWst.,
á veitusvæði Norðurorku 5,32 kr./kWst.
b) Niðurgreiðsla á vatni frá kyntum hitaveitum:
RARIK 4,00 kr./kWst.,
Orkubú Vestfjarða 3,78 kr./kWst.,
HS veitur 138,40 kr./m³ (3,05 kr./kWst.).
c) Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar.
Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar tekur mið af meðaltali niðurgreidds raforkuverðs til húshitunar í dreifbýli, nýtni olíuhitunarkerfis og olíuverðs á hverjum ársfjórðungi samkvæmt útreikningum Orkustofnunar.
d) Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis.
Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis skal vera 2,0 kr./kWst.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002 um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar og fjárlög fyrir árið 2018 hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ákveðið að hámarksfjöldi niðurgreiddra kWst./ári til hitunar verði 40.000 kWst. sem svarar til 888 m³/ári hjá kyntum hitaveitum og 4.480 lítrar af olíu á ári hjá þeim sem hita með olíu.

Fjárhæðir niðurgreiðslna til húshitunar samkvæmt auglýsingu þessari taka gildi frá og með 1. apríl 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. mars 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Ingvi Már Pálsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 11. apríl 2018

Tengd mál