Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Strandabyggð

Málaflokkur

Hafnamál, Strandasýsla

Undirritunardagur

28. desember 2011

Útgáfudagur

23. janúar 2012

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1344/2011

28. desember 2011

GJALDSKRÁ

Hafnarsjóðs Strandabyggðar.

Almennt.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu (brt) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969. Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

3. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 12,65 á mælieiningu (1 mælieining = brt) skv. 2. gr., en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 6,6 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 93,82 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 10.463 á mánuði. Bátar minni en 20 brt greiði þó aldrei lægra en kr. 6.828 á mánuði.

Skip, sem ekki er í rekstri né leggur upp afla hjá Hólmavíkurhöfn, skal greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og nýtur ekki afsláttarkjara í formi viðlegugjalds. Skip sem legið hefur óhreyft lengur en einn mánuð í höfn telst ekki vera í rekstri. Undanþegin eru skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 brt er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum. Lestar- og bryggjugjöld eru innifalin í viðlegugjaldi, sjá 14. gr.

Vörugjöld.

4. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

5. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

6. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri, eða afgreiðslumaður skips, skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu ósundurliðaðar fleiri en ein vörutegund í sendingu skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

7. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.: Gjald kr. 264 fyrir hvert tonn:
Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.: Gjald kr. 481 fyrir hvert tonn:
Lýsi og fiskimjöl.
3. fl.: Gjald kr. 524 fyrir hvert tonn:
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
4. fl.: Gjald kr. 683 fyrir hvert tonn:
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu og brottflutnings.
5. fl.: Aflagjald reiknast 1,54% af heildarverðmæti. Kaupanda afla ber að afhenda skrifstofu Strandabyggðar skýrslu um keyptan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds. Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr. 5.159 fyrir hvert tonn.

Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 264.

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt.

Sorphirða.

8. gr.

Frístundabátar kr. 330 á mánuði
Bátar að 20 brt kr. 1.357 á mánuði
Bátar 21-30 brt kr. 1.997 á mánuði
Bátar yfir 30 brt kr. 4.054 á mánuði

Móttaka á sorpi, ein ferð á flokkunarstöð kr. 8.852.

Festargjöld.

9. gr.

Festargjald fyrir hvern starfsmann í dagvinnu verði kr. 7.458
Festargjald fyrir hvern starfsmann í yfirvinnu verði kr. 12.716

Greiða skal gjöld bæði fyrir komu og brottför. Við komu skipa eru tveir starfsmenn en við brottför einn. Þó er hægt að fá undanþágu hjá hafnarverði frá reglu þessari í sérstökum tilfellum.

Vatnssala.

10. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:

Vatn afgreitt til skipa 31-60 brt kr. 4.290 í hvert skipti
Vatn afgreitt til skipa yfir 60 brt kr. 6.600 í hvert skipti

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 brt er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.

Vatnsgjald er innifalið í viðlegugjaldi.

Vigtargjald.

11. gr.

Almenn vigtun kr. 133 á hvert byrjað tonn
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun kr. 600
Vigtun í yfirvinnu kr. 4.276 pr. klst.

Rafmagnssala.

12. gr.

Rafmagnssala kr. 12,925 á kwst.
Mæla- og tenglagjald kr. 2.035
125 AMP tenglar 2 tenglagjöld pr. mánuð kr. 6.050
Rafmagnstengigjald kr. 2.200
Rafmagnstengigjald í yfirvinnu kr. 4.276

Rafmagnsgjöld geta breyst án fyrirvara samkvæmt breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða hverju sinni.

Kranagjald.

13. gr.

Kranagjald, löndun með krönum hafnarinnar kr. 286 á hvert byrjað tonn.

Viðlegugjald.

14. gr.

Frístundabátar kr. 3.733 á mánuði
Bátar undir 20 brt kr. 6.202 á mánuði
Bátar yfir 20 brt kr. 9.008 á mánuði
Bátar undir 20 brt, fast legupláss kr. 10.003 á mánuði
Bátar yfir 20 brt, fast legupláss kr. 12.334 á mánuði
Daggjald bátar undir 20 brt kr. 1.867
Daggjald bátar yfir 20 brt kr. 2.621
Skip yfir 80 brt kr. 96,25 á brt á mánuði

Í viðlegugjaldi eru innifalin lestargjöld, bryggjugjöld og vatnsgjald. Þeir bátar sem dvelja lengur í höfninni en 30 daga á ári eiga kost á að greiða viðlegugjald.

Hafnsögugjald.

15. gr.

Hafnsögugjald kr. 5,28 á mælieiningu
Hafnsögugjald til og frá höfn kr. 5.467 per klst.
Hafnsögubátur kr. 19.230

Siglingavernd (ISPS).

16. gr.

Öryggisgjald fyrir skip sem falla undir skilgreiningu hafnverndar kr. 38.805 á komu
Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í dagvinnu kr. 4.448 per klst.
Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í yfirvinnu kr. 7.194 per klst.

Skráningargjald.

17. gr.

Skráning í Gaflinn á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi, kr. 0,297 á kg.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

18. gr.

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Heimilt er að leita samþykkis hafnarstjóra til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

19. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Strandabyggðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa starfsmanni hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda starfsmanni hafnarinnar þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef starfsmaður hafnarinnar krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá starfsmanni hafnarinnar að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

20. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

21. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi og/eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samingsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Starfsmanni hafnarinnar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

22. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Strandabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Gildistaka.

23. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar var samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 15. desember 2011 og öðlast þegar. Jafnframt fellur brott eldri gjaldskrá sama efnis nr. 523/2010.

Hólmavík, 28. desember 2011.

Ingibjörg Valgeirsdóttir hafnarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2012

Tengd mál