Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Landhelgismál
Undirritunardagur
24. september 2025
Útgáfudagur
24. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1013/2025
24. september 2025
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 860/2025, um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.
1. gr.
Í töflu í 3. gr. er gerð breyting svohljóðandi:
| Tegund/Svæði | Ráðlagður heildarafli | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar |
| Brimbútur (sæbjúga): | 2.168 | 2.168 | 115 | 2.053 |
| Svæði A – Norður-Aðalvík | 110 | 110 | 6 | 104 |
| Svæði B – Vestfirðir, miðsvæði | 36 | 36 | 2 | 34 |
| Svæði C – Vestfirðir, suðursvæði | 40 | 40 | 2 | 38 |
| Svæði D – Utanverður Breiðafjörður | 45 | 45 | 2 | 43 |
| Svæði E – Faxaflói | 416 | 416 | 22 | 394 |
| Svæði F – Austurland, norðursvæði | 208 | 208 | 11 | 197 |
| Svæði G – Austurland, miðsvæði | 964 | 964 | 51 | 913 |
| Svæði H – Austurland, suðursvæði | 349 | 349 | 18 | 331 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 24. september 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Skúli Kristinn Skúlason.
B deild — Útgáfudagur: 24. september 2025