Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Gististaðir, Veitingastaðir
Undirritunardagur
10. júní 2016
Útgáfudagur
22. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 67/2016
10. júní 2016
LÖG
um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 (heimagisting, veitingastaðir án áfengisveitinga, ótímabundin rekstrarleyfi).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
- Í stað orðanna „til lengri eða skemmri tíma“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: að hámarki í 30 daga samfleytt í senn.
- Í stað 2. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota og er í hans eigu. Fjöldi útleigðra daga í báðum eignum samanlagt skal ekki fara yfir 90 daga á hverju almanaksári eða samanlagðar tekjur af leigu eignanna skulu ekki nema hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
- Í stað flokka IV og V í 3. mgr. kemur einn nýr flokkur, Flokkur IV, svohljóðandi: Gististaður með áfengisveitingum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 4. gr. laganna:
- Flokkur II orðast svo: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
- Flokkur III orðast svo: Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist, og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.
3. gr.
Í stað orðanna „4. mgr. 18. gr.“ í 2. mgr. 5. gr. laganna kemur: 17. gr.
4. gr.
Í stað orðsins „hæfi“ í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: hæfni.
5. gr.
1. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo: Sá sem hyggst stunda starfsemi sem fellur undir gistiflokka II–IV og veitingastaðaflokka II og III skal hafa til þess rekstrarleyfi útgefið af leyfisveitanda.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 8. gr. laganna:
- Orðið „annarra“ í a-lið fellur brott.
- Í stað fjárhæðarinnar „500.000 kr.“ í g-lið kemur: 1.000.000 kr.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
-
1.
mgr.
orðast
svo:
Útgáfa rekstrarleyfis samkvæmt lögum þessum er háð því að kröfur á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli séu uppfyllt og, eftir því sem við á, að starfsleyfi sem gefin eru út af heilbrigðisnefndum sveitarfélaga fáist fyrir þeirri starfsemi sem umsókn lýtur að. -
1. tölul. 4. mgr. orðast svo: Sveitarstjórnar sem m.a. staðfestir eftirfarandi atriði:
- að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
- að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu,
- að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um,
- að starfsemi sé í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli og, þegar við á, mat heilbrigðisnefndar á grenndaráhrifum starfseminnar, þ.m.t. hljóðvist,
- að kröfum um brunavarnir sé fullnægt samkvæmt mati slökkviliðs.
- 2., 3. og 5. tölul. 4. mgr. falla brott.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
-
1.
mgr.
orðast
svo:
Rekstrarleyfi til starfsemi samkvæmt lögum þessum skal vera ótímabundið. Leyfishafi skal tafarlaust og í samræmi við 2. mgr. 12. gr. tilkynna leyfisveitanda að hann hyggist hætta hinni leyfisskyldu starfsemi. - 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
- Orðin „gildistími leyfis“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
-
Á
eftir
3.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Í rekstrarleyfi skal koma fram númer sem leyfisveitandi úthlutar leyfishafa. Leyfishafi skal nota númerið í allri markaðssetningu á starfsemi sinni, svo sem í auglýsingum, á vefsíðum og bókunarsíðum, innlendum sem erlendum.
9. gr.
1. málsl. 6. mgr. 12. gr. laganna fellur brott.
10. gr.
13. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Skráningarskylda.
Hver
sem
hyggst
bjóða
upp
á
heimagistingu
í
samræmi
við
1.
mgr.
3.
gr.
skal
tilkynna
sýslumanni
í
viðkomandi
umdæmi
að
hann
hyggist
leigja
út
lögheimili
sitt
eða
eina
aðra
fasteign
í
sinni
eigu.
Aðila
ber
að
staðfesta
við
skráningu
að
húsnæðið
uppfylli
kröfur
í
reglugerð
um
brunavarnir,
það
hafi
hlotið
samþykki
sem
íbúðarhúsnæði
og
að
húsnæðið
sé
fullnægjandi
með
tilliti
til
hollustuhátta
samkvæmt
lögum
um
hollustuhætti
og
mengunarvarnir.
Endurnýja
þarf
skráningu
á
ári
hverju
og
við
lok
hvers
almanaksárs
skal
aðili
með
skráða
heimagistingu
skila
til
sýslumanns
yfirliti
yfir
þá
daga
sem
húsnæði
var
leigt
út
ásamt
upplýsingum
um
leigutekjur.
Skil
á
upplýsingum
skv.
1.
málsl.
er
skilyrði
fyrir
endurnýjun
skráningar
á
næsta
almanaksári.
Sýslumanni
er
heimilt
að
senda
upplýsingar
skv.
1.
málsl.
til
skattyfirvalda.
Við
skráningu
heimagistingar
skal
sýslumaður
úthluta
aðila
númeri
skráningar
og
ber
aðila
að
nota
númerið
í
allri
markaðssetningu
og
kynningu,
þ.m.t.
á
vefsíðum,
bókunarsíðum,
á
sjálfri
fasteigninni
og
í
auglýsingum
hvers
konar.
Um
skráningarskylda
aðila
gilda,
eftir
því
sem
við
á,
ákvæði
19.
og
26.
gr.
Heimagisting
sem
uppfyllir
skilyrði
laga
þessara
telst
ekki
fara
fram
í
atvinnuhúsnæði
í
skilningi
laga
um
tekjustofna
sveitarfélaga,
nr.
4/1995.
Í
reglugerð
skal
kveða
nánar
á
um
framkvæmd
skráningarskyldu,
upplýsingar
sem
veita
skal
og
kröfur
til
notkunar
skráningarnúmers.
Ráðherra
er
í
reglugerð
enn
fremur
heimilt
að
kveða
á
um
að
öll
skráning,
vinnsla
og/eða
allt
eftirlit
með
heimagistingu
geti
farið
fram
hjá
einu
sýslumannsembætti.
11. gr.
Fyrirsögn III. kafla laganna verður: Leyfisveitingar og skráningarskylda.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
- 1. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Orðið „jafnframt“ í 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Orðin „þótt leyfistími sé ekki liðinn“ í 1. málsl. 6. mgr. falla brott.
-
Á
eftir
6.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Sýslumanni er heimilt að fella niður rekstrarleyfi hafi ekki verið nein starfsemi af hálfu leyfishafa á þeim veitingastað, gististað eða skemmtistað sem fram kemur í leyfinu í samfellt tólf mánuði. Skal leyfishafa tilkynnt skriflega um að niðurfelling standi til og honum heimilað að gera athugasemdir við niðurfellinguna. Sýslumanni er heimilt að senda tilkynningar samkvæmt ákvæði þessu með rafrænum hætti á netfang leyfishafa.
13. gr.
Á eftir 15. gr. laganna kemur ný grein, 15. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Afskráning og synjun skráningar.
Sýslumaður
skal
afskrá
heimagistingu
verði
aðili
uppvís
að
því
að
leigja
út
húsnæði
sitt
til
lengri
tíma
en
90
daga
á
ári
hverju
eða
fyrir
hærri
fjárhæð
en
kveðið
er
á
um
í
3.
tölul.
4.
gr.
laga
um
virðisaukaskatt.
Áður
en
kemur
til
afskráningar
skal
sýslumaður
senda
skráningaraðila
tilkynningu
þar
um
þar
sem
fram
kemur
tilefni
afskráningar
og
skal
skráningaraðila
gefinn
frestur
til
að
andmæla
eða
bæta
úr
annmörkum
sé
það
mögulegt.
Sýslumaður
skal
enn
fremur
synja
um
skráningu
hafi
heimagisting
ítrekað
verið
afskráð,
nýtingaryfirliti
og
upplýsingum
um
leigutekjur
ekki
verið
skilað
eða
aðili
ítrekað
misnotað
skráningu
sína.
Sýslumanni
er
heimilt
að
senda
tilkynningar
samkvæmt
ákvæði
þessu
með
rafrænum
hætti
á
uppgefið
tölvupóstfang
skráningaraðila.
14. gr.
Fyrirsögn IV. kafla laganna verður: Synjun, brottfall, afturköllun og svipting rekstrarleyfis og afskráning.
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
- Orðin „og eru til þess fallnir að valda ónæði, svo sem vegna hávaða“ í 1. mgr. falla brott.
- 4. málsl. 1. mgr. fellur brott.
-
Á
eftir
1.
mgr.
koma
tvær
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Sækja þarf um tækifærisleyfi til áfengisveitinga við einstök tækifæri í atvinnuskyni hvort sem um beina sölu veitinganna er að ræða eða afhendingu þeirra, svo sem í kynningarskyni, á sýningum eða sem lið í hvers konar samkomu- og/eða ráðstefnuhaldi, hvort sem er innan dyra, undir berum himni eða í tjaldi. Slík leyfi verða eingöngu gefin út þegar atburður fer fram á stað sem ekki hefur rekstrarleyfi en þó almennt ekki oftar en tólf sinnum ár hvert vegna sama staðar. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga má þó samþykkja sem viðbót við gilt rekstrarleyfi, svo sem vegna tímabundins viðbótarafgreiðslutíma áfengisveitinga.
Ekki þarf tækifærisleyfi fyrir einkasamkvæmum. - Í stað orðanna „einnar viku“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: þriggja vikna.
- 1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Leyfisveitandi getur bundið leyfi eftirfarandi skilyrðum að fengnum umsögnum lögreglustjóra, heilbrigðisnefnda, sveitarstjórnar, slökkviliðs og eftir atvikum annarra umsagnaraðila skv. 10. gr.
- Í stað orðsins „hann“ í 2. tölul. 3. mgr. kemur: lögreglustjóri.
- Á eftir orðinu „lögreglumenn“ í 3. tölul. 3. mgr. kemur: eða öryggisvakt slökkviliðs.
- Á eftir orðinu „lögreglustjóri“ í 4. tölul. 3. mgr. kemur: eða slökkviliðsstjóri.
- 4. mgr. fellur brott.
16. gr.
18. gr. laganna fellur brott.
17. gr.
Við 20. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Leyfisveitandi skal enn fremur birta lista yfir skráða heimagistingu í miðlægu kerfi og á heimasíðu sinni. Nánar skal kveðið á um birtingu upplýsinga í reglugerð.
18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
-
Á
eftir
1.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Sýslumenn skulu hafa eftirlit með skráðum og skráningarskyldum aðilum, svo sem varðandi skráningarskyldu, tímalengd útleigu í heimagistingu og skil á nýtingaryfirliti og upplýsingum um leigutekjur. Sýslumenn geta leitað atbeina lögreglu við eftirlit með skráðum og skráningarskyldum aðilum. Þá skulu sýslumenn einnig sinna eftirliti með notkun á leyfisnúmeri í rekstrarleyfisskyldri starfsemi, sbr. 4. mgr. 11. gr. -
3.
mgr.
orðast
svo:
Heilbrigðisnefnd skal tilkynna viðkomandi leyfisveitanda ef fyrirhuguð er svipting starfsleyfis eða ef starfsemi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til heimagistingar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og um frávik sem koma fram í eftirliti. Leyfisveitandi skal tilkynna heilbrigðisnefnd ef fyrirhuguð er svipting rekstrarleyfis eða afskráning heimagistingar. - Á eftir orðunum „rekstur leyfishafa“ í 4. mgr. kemur: eða skráðs aðila; og í stað orðanna „endurnýjun þess“ í sömu málsgrein kemur: skráningu.
19. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:
- Fyrri málsliður 1. mgr. orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn 4. mgr. 4. gr. um nektarsýningar eða 5. gr. um dvöl ungmenna á veitingastöðum eða rekur leyfisskylda starfsemi án tilskilins leyfis, sbr. 7., 12. og 17. gr., skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
-
Á
eftir
1.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Hver sá sem rekur heimagistingu án skráningar skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. - Í stað orðanna „1. og 2. mgr.“ í 3. og 4. mgr. kemur: 1.–3. mgr.
20. gr.
Á eftir 22. gr. laganna kemur ný grein, 22. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Stjórnvaldssektir.
Sýslumaður
getur
lagt
stjórnvaldssektir
á
hvern
þann
sem
rekur
heimagistingu
án
skráningar
skv.
13.
gr.,
stundar
útleigu
lengur
en
90
daga
á
hverju
almanaksári
eða
fyrir
hærri
fjárhæð
en
kveðið
er
á
um
í
3.
tölul.
4.
gr.
laga
um
virðisaukaskatt.
Einnig
er
sýslumanni
heimilt
að
leggja
stjórnvaldssektir
á
hvern
þann
sem
ekki
notar
númer
rekstrarleyfis
eða
skráningar
í
markaðssetningu
skv.
4.
mgr.
11.
gr.
og
3.
mgr.
13.
gr.
Stjórnvaldssektir
geta
numið
frá
10
þús.
kr.
til
1
millj.
kr.
fyrir
hvert
brot,
eru
aðfararhæfar
og
skulu
renna
í
ríkissjóð.
Við
ákvörðun
sekta
skal
tekið
tillit
til
alvarleika
brots.
Gjalddagi
stjórnvaldssektar
er
30
dögum
eftir
að
ákvörðun
um
sektina
var
tekin.
Um
ákvörðun
og
útreikning
dráttarvaxta
fer
eftir
lögum
um
vexti
og
verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum
má
beita
óháð
því
hvort
lögbrot
eru
framin
af
ásetningi
eða
gáleysi.
Aðili
máls
getur
skotið
ákvörðun
sýslumanns
um
stjórnvaldssektir
til
ráðherra
innan
þriggja
mánaða
frá
því
að
aðila
var
tilkynnt
um
ákvörðunina.
Málskot
til
ráðherra
frestar
aðför.
21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
- Orðin „útrunnið rekstrarleyfi hefur ekki verið endurnýjað“ í a-lið 1. mgr. falla brott.
- Í stað „18. gr.“ í c-lið 1. mgr. kemur: 17. gr.
- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Þegar rökstuddur grunur er um að fram fari nektarsýningar eða að með öðrum hætti sé gert út á nekt starfsmanna eða annarra sem eru á staðnum.
-
Á
eftir
2.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Sýslumaður getur farið fram á að lögreglustjóri, án fyrirvara eða aðvörunar, stöðvi skráningarskylda starfsemi sem fram fer án skráningar. Heimilt er að útfæra þetta úrræði nánar í reglugerð.
22. gr.
Í stað orðanna „Um gjald“ í 24. gr. laganna kemur: Um skráningargjald og gjald.
23. gr.
Ákvæði til bráðabirgða I og II í lögunum falla brott.
24. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2017.
25. gr. Breyting á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 11. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með síðari breytingum:
| a. | 20. tölul. orðast svo: Gistileyfi og skráningargjald skv. 3. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald | |||
| a. | flokkur I (skráningargjald) | 8.000 kr. | ||
| b. | flokkur II | 30.000 kr. | ||
| c. | flokkur III | 38.000 kr. | ||
| d. | flokkur IV | 250.000 kr. | ||
| b. | 21. tölul. orðast svo: Veitingaleyfi skv. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald | |||
| a. | flokkur II | 200.000 kr. | ||
| b. | flokkur III | 250.000 kr. | ||
| c. | 22. tölul. orðast svo: Tækifærisleyfi fyrir skemmtun skv. 17. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald | 10.000 kr. | ||
| d. | 23. tölul. orðast svo: Tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar skv. 17. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald | 31.500 kr. | ||
| e. | 24. tölul. fellur brott. | |||
Ákvæði til bráðabirgða. I.
Öll rekstrarleyfi sem gefin hafa verið út á grundvelli laga nr. 85/2007 halda gildi sínu fram að endurnýjun samkvæmt leyfisbréfi enda komi ekki til niðurfellingar eða sviptingar. Þegar leyfi hefur runnið út skal sækja um nýtt rekstrarleyfi á grundvelli laganna.
II.
Þegar kemur að lokum gildistíma er leyfisveitanda heimilt að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og giltu um hið fyrra leyfi til allt að þriggja mánaða. Á gildistíma bráðabirgðaleyfis skal leyfishafi sækja um nýtt leyfi á grundvelli nýrra laga eða skrá starfsemi sína í samræmi við ákvæði þar um. Einungis er heimilt að framlengja bráðabirgðaleyfi ef umsækjanda verður ekki kennt um tafir á útgáfu nýs leyfis eða skráningu.
Gjört á Bessastöðum, 10. júní 2016.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
A deild - Útgáfud.: 22. júní 2016