Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Ferðamál, Þjóðgarðar
Undirritunardagur
13. júlí 2018
Útgáfudagur
17. júlí 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 715/2018
13. júlí 2018
REGLUGERÐ
um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
| 1. | Almennt gjald | kr. | 1.900 | |
| 2. | 13 til 17 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 800 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
| 1. | Almennt gjald | kr. | 5.000 | |
| 2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
| 1. | Almennt gjald | kr. | 4.000 | |
| 2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
| 1. | Sturtugjald, eitt skipti | kr. | 500 | |
| 2. | Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring | kr. | 1.000 | |
| 3. | Afnot af þvottavél, eitt skipti | kr. | 500 | |
| 4. | Afnot af þurrkara, eitt skipti | kr. | 500 | |
| 5. | Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | kr. | 500 | |
| 6. | Veitt aðstoð við ferðamenn | kr. | 16.000 | |
| 7. | Útgáfa leyfa, stór verkefni | kr. | 25.000 | |
| 8. | Útgáfa leyfa, lítil verkefni | kr. | 10.000 | |
| 9. | Aðgangur að íshellum, pr. mann | kr. | 1.000 | |
| 10. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.
Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
4. gr.
Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 – 24.00):
| 1. | Flokkur A – Fólksbifreið, 5 manna og færri | kr. | 750 | |
| 2. | Flokkur B – Fólksbifreið, 6-9 manna | kr. | 1.000 | |
| 3. | Flokkur C – Rúta, 10-18 manna | kr. | 1.800 | |
| 4. | Flokkur D – Rúta, 19-32 manna | kr. | 3.500 | |
| 5. | Flokkur E – Rúta, 33-64 manna | kr. | 6.400 | |
| 6. | Flokkur F – Rúta, 65 manna og fleiri | kr. | 9.000 | |
| 7. | Bifhjól | kr. | 300 |
Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
5. gr.
Reglugerð þessi, er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 727/2017 um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. júlí 2018.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Kjartan Ingvarsson.
B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2018