Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Undirritunardagur
14. mars 2025
Útgáfudagur
14. mars 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 6/2025
14. mars 2025
FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu starfa ráðherra.
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:
1. gr. Forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið forsætisráðherra.
2. gr. Atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið atvinnuvegaráðherra.
3. gr. Dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.
4. gr. Félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og húsnæðismálaráðherra.
5. gr. Fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.
6. gr. Heilbrigðisráðherra.
Alma D. Möller fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.
7. gr. Innviðaráðherra.
Eyjólfur Ármannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.
8. gr. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Logi Einarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
9. gr. Mennta- og barnamálaráðherra.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.
10. gr. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Jóhann Páll Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
11. gr. Utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 11. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkisráðherra.
12. gr.
Úrskurður þessi öðlast gildi 15. mars 2025. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 142 frá 21. desember 2024 um skiptingu starfa ráðherra.
Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2025.
Halla
Tómasdóttir.
(L.
S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild - Útgáfud.: 14. mars 2025