Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

12. febrúar 2026

Útgáfudagur

26. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 184/2026

12. febrúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Breyting á greinargerð deiliskipulags Áslands, 4. áfanga, vegna Hryggjaráss 11.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. febrúar 2026 breyting á greinargerð deiliskipulags Áslands, 4. áfanga, fyrir Hryggjarás 11. Breytingin felst í því að í kafla 3 um sérákvæði í greinargerð „Deiliskipulag, Ásland, 4. áfangi“ er gerð textabreyting varðandi útbyggingar og skjólvegg við anddyri fyrir lóðina Hryggjarás 11.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Breyting greinargerðar hefur hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Suðurbæjar sunnan Hamars vegna Hringbrautar 36.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. febrúar 2026 breyting á deiliskipulagi Suðurbæjar sunnan Hamars fyrir Hringbraut 36. Breytingin felst í því að nýjum byggingarreit fyrir bílskúr verði bætt við á lóðina. Byggingarreiturinn verði 800 x 550 cm við lóðarmörkin að Hringbraut 38 og u.þ.b. 2.200 cm frá lóðarmörkum að Hringbraut. Bílastæði verði bætt við fyrir framan bílskúrinn.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Hvaleyrarbrautar 20.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. febrúar 2026 breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar fyrir Hvaleyrarbraut 20. Breytingin felst í því að djúpgámar sem staðsettir eru við innkeyrslu í bílakjallara eru fluttir til á lóðinni og þeim fjölgað. Ný staðsetning djúpgáma er nyrst á lóðinni við bílastæðin. Bílastæði breytast.

Málsmeðferð var skv. 3. mgr. 44.gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hafnarfirði, 12. febrúar 2026.

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs,

Aleksandra Julia Wegrzyniak, þjónustufulltrúi á tæknisviði.

B deild — Útgáfudagur: 26. febrúar 2026

Tengd mál