Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

16. desember 2015

Útgáfudagur

28. desember 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1199/2015

16. desember 2015

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2015 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2015 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 6,3% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2015. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2015, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

Reykjavík, 16. desember 2015.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2015

Tengd mál