Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. október 2023

Útgáfudagur

24. október 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1113/2023

9. október 2023

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 500/2011 um doktorsnám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 53. gr. reglnanna:

  1. Fyrirsögn greinarinnar verður: Einingafjöldi, doktorsritgerðir.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Samsettar doktorsritgerðir.
    Fjöldi greina: Fjórar.
    Samþykktar til birtingar: Af þessum fjórum skulu tvær greinar vera samþykktar til birtingar, og þriðja greinin komin vel áleiðis í ritrýniferli, þ.e. samþykki fyrir endurvinnslu og endursendingu til ritstjórnar tímarits (revise and resubmit) og sú fjórða send á tímarit.
    Greinar birtar í alþjóðlega viðurkenndum tímaritum: Birtingarvettvangur greinanna skal standast viðmið Scopus, Web of Science eða efsta flokks í norrænum gagnagrunnum.
  3. 4. mgr. fellur brott.

2. gr.

Reglur þessar eru settar í samræmi við 47. og 68.–69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands og með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar hafa verið samþykktar af deildum félagsvísindasviðs og stjórn fræðasviðsins og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. október 2023.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 24. október 2023

Tengd mál