Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Atvinnuréttindi, Staðlar

Undirritunardagur

2. mars 2026

Útgáfudagur

10. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 14/2026

2. mars 2026

LÖG

um breytingu á lögum um faggildingu o.fl. og lögum um staðla og Staðlaráð Íslands (endurskoðun).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIBreyting á lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:

  1. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Markmið laga þessara er að skapa traustan grundvöll fyrir faggildingarstarfsemi hér á landi, með aðkomu stjórnvalda og einkaaðila, til samræmis við tilgang faggildingar á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Gildissvið og markmið.

2. gr.

2. gr. laganna orðast svo:

Í lögum þessum er merking eftirfarandi orða og orðasambanda sem hér segir:

  1. Faggilding: Staðfesting frá faggildingarstofnun um að samræmismatsaðili uppfylli kröfur sem eru settar fram í staðli og, þar sem við á, allar viðbótarkröfur, þ.m.t. þær sem settar eru fram í viðeigandi atvinnugreinakerfum, til að annast sérstakt samræmismat.
  2. Faggildingarstofnun: Eina stofnunin í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins sem annast faggildingu með leyfi frá ríkinu.
  3. Fullgilding: Staðfesting á trúverðugleika með því að leggja fram hlutlægar sannanir um að kröfur vegna tiltekinna fyrirhugaðra nota eða beitingar hafi verið uppfylltar.
  4. Góðar starfsvenjur við rannsóknir: Gæðakerfi sem varðar skipulagsferli og skilyrði fyrir áætlun, framkvæmd, eftirliti, skráningu, gagnageymslu og skýrslugjöf að því er varðar rannsóknir á umhverfisöryggi og heilbrigðisrannsóknir sem ekki eru klínískar.
  5. Prófun: Greining á einum eða fleiri eiginleikum sýnis sem metnir eru samkvæmt fyrirframgefinni aðferð.
  6. Samræmismat: Ferli sem sýnir fram á hvort sérstakar kröfur í tengslum við vöru, vinnslu, þjónustu, kerfi, einstaklinga eða stofnun hafa verið uppfylltar.
  7. Samræmismatsaðili: Aðili sem annast samræmismat, þ.m.t. kvörðun, prófun, vottun, skoðun, sannprófun og fullgildingu.
  8. Sannprófun: Staðfesting á sannleiksgildi með því að leggja fram hlutlægar sannanir um að tilgreindar kröfur hafi verið uppfylltar.
  9. Skoðun: Athugun á vöruhönnun, vöru, ferli eða uppsetningu búnaðar og ákvörðun á samræmi þess við tilgreindar kröfur, eða almennar kröfur, og skal þá byggt á faglegum úrskurði.
  10. Tilkynntur aðili: Aðili sem stjórnvöld hafa tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA, framkvæmdastjórnar ESB og annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins að uppfylli viðeigandi kröfur til þess að fást við samræmismat samkvæmt tiltekinni tæknilegri reglugerð.
  11. Tilnefndur aðili: Aðili sem stjórnvald hefur veitt tilnefningu.
  12. Tilnefning: Heimild sem stjórnvald veitir aðila til að stunda tiltekna starfsemi við samræmismat.
  13. Vottun: Formleg staðfesting þriðja aðila byggð á athugun á starfsemi eða eiginleikum á því að vara, ferli, kerfi eða aðili uppfylli tilgreindar kröfur.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Faggildingarsvið Hugverkastofunnar, ISAC, er hin íslenska faggildingarstofnun og eini aðilinn sem hefur heimild til að annast faggildingu fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Faggildingarsvið skal vera faglega og fjárhagslega sjálfstætt og óháð opinberum aðilum og einkaaðilum sem eiga eða kunna að eiga við það viðskipti. Starfsemi þess skal vera fjárhagslega og faglega aðgreind frá annarri starfsemi Hugverkastofunnar. Tryggja skal starfshæfni faggildingarsviðs með framlagi úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum, ásamt því sem sviðið hefur tekjur af starfsemi sinni í samræmi við 12. gr.
  2. Á undan orðinu „skoðunarstofur“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: samræmismatsaðila, svo sem.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Faggildingarsvið getur sett á stofn nefndir, svo sem ákvörðunarnefnd um faggildingu og ráðgjafarnefnd, til að annast tiltekna þætti faggildingarstarfseminnar í umboði sviðsins.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að innleiða reglur um faggildingu og setja tilvísanir til þeirra staðla sem um starfsemina eiga að gilda. Faggildingarsvið skal starfa í samræmi við þær kröfur um faggildingu sem innleiddar hafa verið hér á landi og í samræmi við reglur Evrópusamtaka um faggildingu (EA) og alþjóðlegra samtaka um faggildingarsamvinnu. Faggildingarsviði er heimilt að gefa út eigin reglur um starfsemina, sem og leiðbeiningar og verklagsreglur fyrir samræmismatsaðila í samræmi við alþjóðlega staðla um samræmismat.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Reglur um faggildingarstarfsemi.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:

  1. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Faggildingarsvið skal gera samning við umsækjanda þar sem kveðið er á um skilyrði og samstarf vegna faggildingarinnar.
  2. 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Ákvörðun faggildingarsviðs er endanleg á stjórnsýslustigi.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „leyfisbréfi“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: faggildingarskírteini.
  2. Í stað orðanna „leyfi til faggildingar er fellt“ í 2. mgr. kemur: faggilding er felld.

7. gr.

3. málsl. 8. gr. laganna fellur brott.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „þar til bæru stjórnvaldi“ kemur: faggildingarstofnun.
  2. Í stað orðanna „Alþjóðasamtökum um faggildingarsamvinnu (ILAC)“ kemur: alþjóðlegum samtökum um faggildingarsamvinnu.

9. gr.

Orðin „og setur reglugerð sem um það skal gilda, m.a. um útlit merkisins, stöðu þess og notkun“ í 2. mgr. 11. gr. laganna falla brott.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Þjónusta faggildingarsviðs er gjaldskyld. Faggildingarsvið skal setja sér gjaldskrá þar sem kveðið er á um gjald fyrir þá þjónustu sem sviðið veitir, svo sem við meðferð umsókna, mat á faggiltum og tilnefndum aðilum og starfsemi þeirra, mat á góðum starfsvenjum við rannsóknir og umsýslu við eftirlit.
  2. Við 3. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gjaldskráin skal einnig birt á vef faggildingarsviðs. Heimilt er að kveða á um árlega verðlagsuppfærslu í gjaldskránni og skal þá gildandi verð á hverjum tíma birtast á vefnum.

11. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „nýaðferðartilskipanir“ í 1. mgr. kemur: EES-reglur.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Tilkynntir aðilar skulu uppfylla skilyrði faggildingar.
  3. Í stað tilvísunarinnar „6. tölul.“ í 2. mgr. kemur: 10. tölul.

II. KAFLIBreyting á lögum um staðla og Staðlaráð Íslands nr. 36/2003.

12. gr.

Í stað orðanna „öllum heimil“ í 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: heimil íslenskum lögaðilum.

13. gr.

1. málsl. 7. gr. laganna orðast svo: Staðlaráð Íslands skal rekið á grundvelli þjónustusamnings við ríkið.

14. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 2. mars 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Hanna Katrín Friðriksson.

A deild — Útgáfudagur: 10. mars 2026

Tengd mál