Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Gæludýr, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
6. desember 2021
Útgáfudagur
27. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1525/2021
6. desember 2021
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Dalvíkurbyggð.
1. gr.
Við skráningu hunda skal greiða skráningargjald kr. 3.244.
2. gr.
Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna hunda kr. 9.980. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar og eftirlits. Ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar eftirlitsgjaldið um 50%.
3. gr.
Af hundum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 14. gr. samþykktar um hundahald í Dalvíkurbyggð skal eigandi greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hundur er ekki örmerktur samkvæmt 9. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.
4. gr.
Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta kr. 6.236 vegna handsömunar og gjald fyrir fóður og vistun samkvæmt kostnaði. Gjald fyrir örmerkingu hunda fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.
5. gr.
Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. kafla XVI, auk reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti og samþykkt um hundahald í Dalvíkurbyggð nr. 1234/2020, öðlast gildi við birtingu.
6. gr.
Gjaldskráin uppfærðist haustið 2021 og hækkaði um 4% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.
Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 23. september 2021 og í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 23. nóvember 2021.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2022 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1403/2020 úr gildi.
Dalvíkurbyggð, 6. desember 2021.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021