Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. júní 2022
Útgáfudagur
22. júní 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 739/2022
7. júní 2022
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Orðið „gæðanefnd“ í upptalningu nefnda í 1. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Á eftir orðunum „skipulagsnefnd háskólasvæðisins“ í upptalningu nefnda í 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: stefnu- og gæðaráð.
- Í stað orðsins „gæðanefnd“ í upptalningu nefnda í 3. málsl. 1. mgr. koma orðin: stefnu- og gæðaráð.
2. gr.
Í stað orðsins „gæðanefndar“ í 2. mgr. 24. gr. reglnanna koma orðin: stefnu- og gæðaráðs.
3. gr.
4. málsl. 2. mgr. 44. gr. reglnanna orðast svo: Í valnefndum skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
4. gr.
Í stað orðsins „gæðanefnd“ í 2. mgr. 66. gr. reglnanna koma orðin: stefnu- og gæðaráð.
5. gr.
Í stað orðsins „gæðanefnd“ í 18. tölul. 69. gr. reglnanna koma orðin: stefnu- og gæðaráð.
6. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. júní 2022.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 22. júní 2022