Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
29. apríl 2016
Útgáfudagur
8. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 503/2016
29. apríl 2016
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015 í réttri númeraröð:
| 1.4 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/119 frá 28. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 1.4. | |
| 2.4 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/111 frá 28. janúar 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 2.4. |
Ákvæði 2. mgr. 2. gr. hljóði svo:
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.
Lilja Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 8. júní 2016