Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Kirkjumál, Útfarir
Undirritunardagur
28. júní 2026
Útgáfudagur
6. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 72/2026
28. júní 2026
LÖG
um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (dreifing ösku).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
- 2. mgr. orðast svo:
Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum úr forgengilegu efni. Heimilt er að grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn, er greinir í 1. mgr. 47. gr., óska þess. Sé ákveðið að grafa duftker skal dýpt duftkersgrafar vera um 1 metri. - 4. mgr. orðast svo:
Virða ber ósk hins látna um hvar og hvernig ösku er dreift eða hún varðveitt sé ósk hins látna sú að askan sé ekki jarðsett. Um nánari reglur um dreifingu ösku látins manns, svo sem um skráningu í legstaðaskrá og mögulegar takmarkanir, m.a. vegna hollustuhátta, eignarréttar, merkingar dreifingarstaðar og dreifingar ösku í þéttbýli eða á fjölförnum stöðum, fer samkvæmt reglugerð settri með heimild í 1. mgr. 50. gr. - 5. og 6. mgr. falla brott.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 6. júlí 2026