Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
16. september 2011
Útgáfudagur
4. október 2011
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 904/2011
16. september 2011
SKIPULAGSSKRÁ
sjálfseignarstofnunarinnar Unicef Ísland.
1. gr.
Heiti stofnunarinnar.
Stofnunin er íslenska landsnefndin fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (United Nations Children’s Fund, hér eftir nefnt UNICEF). Heiti stofnunarinnar er Unicef Ísland.
Unicef Ísland er sjálfseignarstofnun sem starfar í þeim eina tilgangi á Íslandi að styðja við vinnu og markmið UNICEF.
Unicef Ísland notast eingöngu við alþjóðlegt merki og nafn UNICEF í vinnu sinni. Í kynningarstarfsemi skal leitast við að fylgja sameiginlegri stefnu UNICEF hvað varðar ímynd samtakanna.
2. gr.
Heimili.
Heimili og varnarþing Unicef Ísland er að Laugavegi 42, Reykjavík.
3. gr.
Stofnendur og stofnfé.
Stofnendur Unicef Ísland er hópur einstaklinga og lögaðila, sem hafa að markmiði að styðja við vinnu og markmið UNICEF, og eru m.a. Allianz Ísland hf. söluumboð, Baugur Group hf., Pharmaco hf. og Samskip hf., sem leggja fram stofnfé Unicef Ísland, alls kr. 16.000.000, þar af óskerðanlegt stofnfé að lágmarksfjárhæð kr. 1.000.000. Stofnfé skal ávaxtað með þeim hætti að samræmist markmiðum Unicef Ísland.
4. gr.
Markmið.
Markmið Unicef Ísland er að styðja við markmið UNICEF og vinna í samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Markmiðum Unicef Ísland skal náð með eftirfarandi hætti:
með
því
að
safna
fé
fyrir
alþjóðlegum
verkefnum
UNICEF,
m.a.
gegnum
fjársafnanir,
með
sölu
á
jólakortum
og
öðrum
vörum,
með
því
að
leita
eftir
styrkjum,
ýmist
frá
einstaklingum
eða
lögaðilum,
með
innheimtu
reglubundinna
framlaga
og
með
öðrum
hætti;
með
því
að
vinna
að
því
að
UNICEF
fái
fjárhagslegan
stuðning
frá
íslenskum
stjórnvöldum;
með
upplýsingum
og
fræðslu
til
að
kynna
og
auka
skilning
á
störfum
UNICEF
í
þágu
réttinda
og
hagsmuna
barna
í
heiminum,
þ.
á
m.
um
jafna
stöðu
stúlkna
og
pilta;
með
því
að
auka
skilning
íslensks
almennings,
og
þá
sérstaklega
barna,
á
aðstæðum
barna
og
ungs
fólks
annars
staðar
í
heiminum;
með
því
að
vera
íslenskum
stjórnvöldum
til
aðstoðar
varðandi
upplýsingar
um
störf
UNICEF,
s.s.
um
fjárhag,
áætlanir
o.s.frv.;
með
því
að
auka
vitund
stjórnenda
í
viðskiptalífinu
á
mikilvægi
þess
að
beina
augum
að
hagsmunum
barna
um
allan
heim;
með
því
að
gæta
réttinda
barna
á
Íslandi
og
veita
stjórnvöldum
aðhald
á
sviði
barnaréttar;
með
því
að
tryggja
að
fjármunum
sem
safnað
er
í
starfi
Unicef
Ísland
sé
varið
í
þágu
framangreindra
markmiða.
5. gr.
Fjármögnun.
Starfsemi stofnunarinnar verður fjármögnuð með styrkjum og fjárframlögum frá einstaklingum og lögpersónum.
6. gr.
Skipulag.
Stjórn fer með öll völd í stofnuninni, sbr. 7. gr., og nýtur liðsinnis hollvina Unicef Ísland, sbr. 10. gr. Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar, sbr. 9. gr.
7. gr.
Styrktaraðild og hollvinir.
Allir geta gerst styrktaraðilar Unicef Ísland samkvæmt nánari reglum sem stjórnin setur.
Stjórn getur með samþykki aukins meirihluta ákveðið án fyrirvara að þiggja ekki stuðning frá styrktaraðilum Unicef Ísland.
8. gr.
Aðalfundur og ársfundur.
Aðalfund sitja stjórnarmenn Unicef Ísland. Að auki getur stjórnin boðið gestum að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Reglulega aðalfundi skal halda eigi síðar en í júní.
Á aðalfundi skal ávallt taka fyrir þessi mál:
| 1) | Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur Unicef Ísland fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda stofnunarinnar til samþykktar. | |
| 2) | Skipun stjórnar. | |
| 3) | Kjör endurskoðenda. | |
| 4) | Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. |
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa stjórnarmenn einir og ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum nema kveðið sé á um annað í samþykktum þessum. Nú verða atkvæði jöfn og ræður þá hlutkesti úrslitum.
Stjórn getur ákveðið að boða til aukafundar krefjist a.m.k. fjórðungur stjórnar þess. Skal um fundarboð og fundarsköp fara sem um aðalfund sé að ræða.
Ársfundur skal haldinn í framhaldi af aðalfundi, eigi síðar en í júní, og skal hann vera opinn almenningi. Boða skal til ársfundar opinberlega með viku fyrirvara. Á ársfundi skulu stjórn og framkvæmdastjóri gera grein fyrir stöðu stofnunarinnar og kynna ársskýrslu liðins árs. Ársfundur skal vera vettvangur fyrir umræðu um starf Unicef Ísland.
9. gr.
Stjórn.
Stjórn fer með málefni Unicef Ísland og mótar heildarstefnu Unicef Ísland, m.a. um fjáröflun og áherslur í verkefnum. Stjórn Unicef Ísland ber ábyrgð á fjárreiðum sjóðsins og ávöxtun fjármuna hans. Stjórn setur sér starfsreglur og siðareglur í samræmi við þessar samþykktir.
Stjórn Unicef Ísland skipa níu einstaklingar. Skipað er í stjórn til tveggja ára og geta einstakir stjórnarmenn setið í stjórninni að hámarki í sex ár samfellt. Undanskilinn er formaður stjórnar sem getur setið lengur, þó aldrei lengur en þrjú tímabil eða sex ár samfellt eftir að hann er kjörinn formaður. Stjórn skal á fyrsta fundi sínum velja formann, varaformann og gjaldkera úr sínum hópi.
Stefna skal að því að þriðjungur stjórnar verði endurnýjaður á tveggja ára fresti. Stjórnina skulu skipa einstaklingar sem vilja stuðla að framgangi Unicef Ísland og vinna í samræmi við markmið UNICEF. Tryggt skal að í stjórn veljist einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn, með mismunandi menntun og reynslu sem getur nýst allri starfsemi Unicef Ísland og verkefnum stjórnar vel. Stjórn Unicef Ísland sér til þess að endurnýjun verði. Í lok skipunartíma stjórnar er það hlutverk hennar að finna einstaklinga til að taka sæti í stjórn og skal val á nýjum stjórnarmönnum fara fram í samræmi við samþykktar verklagsreglur þar að lútandi. Hið sama á við hætti stjórnarmenn eða falli frá.
Stjórn fundar eins oft og þörf krefur, en a.m.k. fjórum sinnum á ári, að frumkvæði formanns stjórnar. Halda skal stjórnarfund krefjist einhver stjórnarmanna þess.
Fundur stjórnar er lögmætur sæki hann a.m.k. fimm stjórnarmenn. Ákvarðanir eru teknar af meirihluta stjórnar. Falli atkvæði að jöfnu ræður atkvæði formanns.
Stjórn ræður framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri ræður aðra starfsmenn að undangenginni kynningu fyrir stjórn.
Framkvæmdastjóri Unicef Ísland er ritari stjórnar og situr alla fundi. Aðrir skulu sitja fundi stjórnar eftir þörfum.
10. gr.
Hollvinir UNICEF.
Stjórn Unicef Íslands skal setja upp vettvang þar sem hollvinir UNICEF geta komið að starfi UNICEF.
Einstaklingar, bæði í eigin nafni og fyrir hönd fyrirtækja, félagasamtaka og stofnana sem styðja við Unicef Ísland geta orðið hollvinir UNICEF.
Stjórn setur hollvinum starfsreglur í samræmi við þessar samþykktir.
11. gr.
Framkvæmdastjóri.
Framkvæmdastjóri er skipaður af stjórn og starfar samkvæmt þeirri stefnu sem stjórn hefur ákveðið, í umboði og á ábyrgð hennar. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur og alla starfsemi Unicef Ísland.
12. gr.
Fjárhagur.
Unicef Ísland skal starfa samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt er af stjórn og kynnt á aðalfundi.
Unicef Ísland er fjármagnað með styrktargreiðslum, sérstökum og reglubundnum söfnunum og á annan hátt sem stjórn ákveður.
Reikningsár Unicef Ísland er almanaksárið og skila skal ársreikningi og skýrslu um hvernig fé sjóðsins hefur verið ráðstafað til Ríkisendurskoðunar fyrir 30. júní ár hvert.
Formaður og framkvæmdastjóri rita firma. Stjórn er heimilt að veita framkvæmdastjóra og öðrum starfsmönnum prókúru.
Endurskoðun reikninga skal vera í höndum löggiltra endurskoðenda sem kosnir eru á aðalfundi. Senda skal endurskoðaða ársreikninga til UNICEF.
13. gr.
Breytingar á skipulagsskrá og ákvörðun um slit.
Ákvörðun um breytingu skipulagsskrár eða slit Unicef Ísland skal tekin á aðalfundi. Slík ákvörðun verður því aðeins gild að hún hljóti samþykki minnst 2/3 hluta stjórnar. Leita skal samþykkis sýslumannsins á Sauðarkróki fyrir breytingum á skipulagsskrá Unicef Ísland eða slitum stofnunarinnar.
Verði Unicef Ísland slitið skal stjórn gera upp skuldir og eignir og slíta svo rekstri hennar. Skulu eftirstandandi eignir renna til UNICEF.
14. gr.
Staðfesting.
Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á skipulagsskrá þessari.
Samþykkt á fundi stjórnar Unicef Ísland í Reykjavík 7. september 2011. Við staðfestingu á skipulagsskrá þessari fellur eldri skrá úr gildi, nr. 911 frá 4. desember 2003.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 16. september 2011.
Ríkarður Másson.
Björn Ingi Óskarsson.
B deild - Útgáfud.: 4. október 2011