Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Neytendastofa
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Neytendavernd, Viðskipti
Undirritunardagur
13. apríl 2007
Útgáfudagur
4. maí 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 383/2007
13. apríl 2007
REGLUR
um verðupplýsingar á þjónustu tannlækna.
Gildissvið og markmið.
1. gr.
Reglur þessar taka til allra sjálfstætt starfandi tannlækna.
Markmið reglnanna er að bæta upplýsingar til neytenda og auðvelda verðsamanburð.
Birting verðupplýsinga.
2. gr.
Gjaldskrá sem sýnir verð á öllum aðgerðaliðum sem framkvæmdir eru hjá tannlækni skal liggja frammi á tannlæknastofu.
Tannlækni sem reglur þessar taka til er skylt að hafa útdrátt úr gjaldskrá á áberandi stað á biðstofu sinni. Útdrátturinn skal sýna verð á þeim aðgerðaliðum og í þeirri röð sem fram koma í 4. gr. þessara reglna.
Í gjaldskrá og útdrætti skal koma fram dagsetning sem sýnir gildistöku.
3. gr.
Ef verð á einstökum aðgerðaliðum er breytilegt, skal bæði í gjaldskrá og í útdrætti gefa upp lágmarks- og hámarksverð og skýringar á verðmun. Ef verð á einstökum aðgerðaliðum er byggt á þeim tíma sem meðferð tekur, þá skal tímagjald gefið upp. Ef annars er ekki getið, þá skal notkun á efni og hjálpargögnum vera innifalið í gjaldskrá og útdrætti.
Útdráttur úr gjaldskrá.
4. gr.
Í útdrætti skal koma fram verð á eftirfarandi aðgerðaliðum:
- Skoðun, áfangaeftirlit, ein tímaeining.
- Tannröntgenmynd.
- Deyfing.
- Flúorlökkun – báðir gómar.
- Skorufylling – jaxl, fyrsta tönn.
- Ljóshert plastfylling, einn flötur.
- Ljóshert plastfylling, jaxl, tveir fletir.
- Silfur – amalgam, jaxl, þrír fletir.
- Gúmmídúkur, ein til þrjár tennur.
- Rótarholsaðgerð; úthreinsun, einn gangur.
- Rótarholsaðgerð; rótfylling, þrír gangar.
- Létt tannsteinshreinsun, ein tímaeining.
- Tanndráttur – venjulegur.
- Endajaxl fjarlægður með skurðaðgerð.
- Postulínsheilkróna á forjaxl. Tannsmíði innifalin.
- Gervitennur, heilgómur á báða tanngarða. Tannsmíði innifalin.
- Lýsingaskinnur og efni til tannlýsingar, báðir gómar.
Kostnaðaráætlun.
5. gr.
Ef ætla má að meðferðarkostnaður verði 100.000 kr. eða meiri skal tannlæknir afhenda neytanda skriflega heildarkostnaðaráætlun áður en meðferð hefst.
Ef kostnaðaráætlun breytist vegna ófyrirsjáanlegra atvika eftir að meðferð er hafin skal tannlæknir gera nýja kostnaðaráætlun áður en meðferð er fram haldið.
Sundurliðaður reikningur.
6. gr.
Tannlæknir skal afhenda neytanda sundurliðaðan reikning í samræmi við gjaldskrá þannig að hann geti á auðveldan hátt séð hvaða meðferð hefur verið framkvæmd.
Undanþága.
7. gr.
Neytendastofa getur veitt undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.
Viðurlög.
8. gr.
Ef brotið er í bága við reglur þessar varðar það viðurlögum samkvæmt 22. og 26. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.
Gildistaka.
9. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 17. og 18. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, öðlast gildi við birtingu og koma í stað reglna nr. 446/2004 sem falla jafnframt úr gildi.
Neytendastofu, 13. apríl 2007.
Tryggvi Axelsson.
Kristín Færseth.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2007