Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

25. október 2016

Útgáfudagur

28. október 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 883/2016

25. október 2016

AUGLÝSING

um nýtt deiliskipulag í Reykjavíkurborg.

Kjalarnes, Esjumelar.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 6. október 2016, deiliskipulag fyrir Esjumela við Vesturlandsveg. Tillagan er að nýju skipulagi athafnasvæðisins Esjumela við Vesturlandsveg, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttu framboði lóða af mismunandi stærðum og gerðum í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Í deiliskipulaginu er einnig lögð rík áhersla á snyrtilegan frágang mannvirkja og lóða. Stærð svæðisins er um 85 hektarar og er aðkoma að svæðinu um Vesturlandsveg. Deiliskipulagið yfirtekur einnig eldra deiliskipulag fyrir vestari hluta Esjumela sem hefur verið í gildi frá 2004. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 25. október 2016.

Björn Axelsson.

B deild - Útgáfud.: 28. október 2016

Tengd mál