Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál

Undirritunardagur

24. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 94/2025

24. desember 2025

LÖG

um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi (fyrirkomulag greiðslna).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIBreyting á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020.

1. gr.

Í stað orðanna „skulu koma“ í 1. mgr. 54. gr. laganna kemur: skulu eiga við um alla foreldra sem eiga rétt á greiðslum á grundvelli laga þessara, óháð því hvenær börn þeirra fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur, og skulu greiðslurnar koma.

2. gr.

Ákvæði til bráðabirgða III og IV í lögunum falla brott.

II. KAFLIBreyting á lögum um sorgarleyfi, nr. 77/2022.

3. gr.

Í stað orðanna „skulu koma“ í 1. mgr. 33. gr. laganna kemur: skulu eiga við um alla foreldra sem eiga rétt á greiðslum á grundvelli laga þessara, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað, og skulu greiðslurnar koma.

4. gr.

Ákvæði til bráðabirgða II og III í lögunum falla brott.

5. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.

Gjört á Bessastöðum, 24. desember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Inga Sæland.

A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál