Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
21. maí 2026
Útgáfudagur
5. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 635/2026
21. maí 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Stígamót, nr. 296/1995, með síðari breytingu nr. 343/2019.
1. gr.
Samþykktar hafa verið eftirfarandi breytingar á skipulagsskrá sjóðsins:
7. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Árlega skal gera reikning yfir rekstur og efnahag stofnunarinnar. Reikningsárið er almanaksárið.
11. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Ársreikningur skal lagður fyrir framkvæmdahóp og skal hann sjá um að ársreikningur berist sýslumanni með tilskildum hætti ár hvert.
Framkvæmdahópur skipar óháðan skoðunarmann reikninga til tveggja ára í senn.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Stígamót staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 21. maí 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Martyna Julia Czubaj.
B deild — Útgáfudagur: 5. júní 2026