Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

9. desember 2019

Útgáfudagur

20. desember 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1211/2019

9. desember 2019

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2020.

Eignamat í árslok

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2019, álagningarárið 2020, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

kr.
Mjólkurkýr 122.000
Holdakýr og naut 150.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri 125.000
Geldneyti 75.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs 12.000
Ær og sauðir 5.800
Hrútar 15.000
Gemlingar 8.000
Geitur 8.000
Hross á 14. vetri og eldri 18.000
Hross á 5. – 13. vetri 36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 170.000
Önnur nýtanleg reiðhross 90.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 250.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 350.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 450.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 12.300
Folöld 8.700
Hænsni, eldri en 6 mánaða 925
Varphænsni 6 mánaða og yngri 625
Kjúklingar 245
Endur 860
Gæsir 1.720
Kalkúnar 2.580
Gyltur 39.000
Geltir 58.000
Grísir 11.000
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 4.500
Kvendýr 3.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 9. desember 2019.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2019

Tengd mál