Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Undirritunardagur
8. júlí 2015
Útgáfudagur
10. júlí 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 45/2015
8. júlí 2015
LÖG
um slysatryggingar almannatrygginga.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Markmið, gildissvið og stjórnsýsla.
1. gr. Markmið.
Markmið
laga
þessara
er
að
tryggja
slysatryggðum
bætur
frá
almannatryggingum
vegna
vinnuslysa
eða
annarra
tiltekinna
slysa
óháð
tekjum
hins
slysatryggða,
sbr.
einnig
lög
um
almannatryggingar,
lög
um
sjúkratryggingar
og
önnur
lög
eftir
því
sem
við
á.
Bæturnar
eru
ýmist
greiddar
í
peningum
eða
veittar
í
formi
aðstoðar
eins
og
nánar
er
kveðið
á
um
í
lögum
þessum.
2. gr. Gildissvið.
Í lögum þessum er mælt fyrir um slysatryggingar almannatrygginga, hverjir eru tryggðir og bætur slysatrygginga.
3. gr. Framkvæmd slysatrygginga.
Sjúkratryggingastofnunin, sbr. lög um sjúkratryggingar, annast framkvæmd slysatrygginga almannatrygginga samkvæmt lögum þessum. Þó skal Tryggingastofnun ríkisins annast greiðslur mánaðarlegra bóta slysatrygginga skv. 12. og 13. gr. nema ráðherra ákveði annað.
4. gr. Yfirstjórn.
Ráðherra fer með yfirstjórn slysatrygginga almannatrygginga samkvæmt lögum þessum.
II. KAFLI Slysatryggingar.
5. gr. Almenn ákvæði.
Slysatryggingar
almannatrygginga
taka
til
slysa
við
vinnu,
iðnnám,
björgunarstörf,
hvers
konar
íþróttaæfingar,
íþróttasýningar,
íþróttakeppni
eða
heimilisstörf,
enda
sé
hinn
slasaði
tryggður
samkvæmt
ákvæðum
7.
eða
8.
gr.
Með
slysi
er
átt
við
skyndilegan
utanaðkomandi
atburð
sem
veldur
meiðslum
á
líkama
hins
tryggða
og
gerist
án
vilja
hans.
Maður
telst
vera
við
vinnu:
- Þegar hann er á vinnustað á þeim tíma þegar honum er ætlað að vera að störfum, svo og í matar- og kaffitímum.
- Í sendiferð í þágu atvinnurekstrar eða í nauðsynlegum ferðum til vinnu og frá, enda sé aðeins um að ræða ferðir sem eru farnar samdægurs milli vinnustaðar og heimilis eða matstaðar. Sama gildir um lengri ferðir af þessu tagi ef starfsmaður er á launum hjá vinnuveitanda í ferðinni.
Slys
telst
ekki
verða
við
vinnu
ef
það
hlýst
af
athöfnum
slasaða
sjálfs
sem
ekki
standa
í
neinu
sambandi
við
vinnuna.
Tryggingin
tekur
þó
til
allra
slysa
á
sjómanni
sem
verða
um
borð
í
skipi
hans
eða
þegar
hann
ásamt
skipinu
er
staddur
utan
heimahafnar
skips
eða
útgerðarstaðar.
Enn
fremur
tekur
tryggingin
til
allra
slysa
á
friðargæsluliðum
íslenska
ríkisins
sem
verða
þegar
þeir
eru
staddir
erlendis
við
friðargæslustörf.
Trygging
samkvæmt
þessari
grein
gildir
þó
ekki
ef
bótaskylda
er
fyrir
hendi
samkvæmt
lögboðinni
ábyrgðartryggingu
ökutækis
eða
slysatryggingu
ökumanns
og
eiganda.
Til
slysa
teljast
sjúkdómar
sem
stafa
af
skaðlegum
áhrifum
efna,
geislaorku
eða
öðru
hliðstæðu
sem
ríkjandi
eru
í
hæsta
lagi
fáeina
daga
og
rekja
verður
til
vinnunnar.
Ákveða
skal
með
reglugerð
að
tilteknir
atvinnusjúkdómar
skuli
teljast
bótaskyldir.
6. gr. Tilkynning.
Þegar
að
höndum
ber
slys,
sem
ætla
má
bótaskylt
samkvæmt
þessum
lögum,
skal
atvinnurekandi
eða
hinn
tryggði,
ef
ekki
er
um
atvinnurekanda
að
ræða,
tafarlaust
senda
tilkynningu
um
slysið
í
því
formi
sem
sjúkratryggingastofnunin
skipar
fyrir
um
til
lögreglustjóra
eða
umboðsmanns
hans
(í
Reykjavík
til
sjúkratryggingastofnunarinnar).
Lögreglustjóri
sendir
tilkynninguna
til
sjúkratryggingastofnunarinnar
ásamt
nauðsynlegum
upplýsingum.
Hinum
slasaða
eða
öðrum
þeim
sem
vilja
gera
kröfu
til
bóta
vegna
slyssins
ber
að
fylgjast
með
því
að
tilkynningarskyldunni
sé
fullnægt
og
geta
þessir
aðilar
leitað
aðstoðar
lögreglustjóra
ef
atvinnurekandi
vanrækir
tilkynninguna.
Ef
atvik
að
slysinu
eru
óljós
eða
mál
ekki
nægilega
upplýst
eða
ástæða
er
til
að
ætla
að
slysið
hafi
orðið
af
hirðuleysi
eða
lélegum
útbúnaði,
svo
og
ef
sjúkratryggingastofnunin
eða
annar
hvor
aðila,
atvinnurekandi
eða
hinn
slasaði
eða
fyrirsvarsmaður
hans,
óskar
þess,
skal
lögreglustjóri
rannsaka
málið.
Ef
sá
sem
átti
að
tilkynna
slys
hefur
vanrækt
það
skal
það
ekki
vera
því
til
fyrirstöðu
að
hinn
slasaði
eða
eftirlátnir
vandamenn
hans
geti
gert
kröfu
til
bóta
ef
það
er
gert
áður
en
ár
er
liðið
frá
því
að
slysið
bar
að
höndum.
Heimilt
er
þó
að
greiða
bætur
þótt
ár
sé
liðið
frá
því
að
slys
bar
að
höndum
ef
atvik
eru
svo
ljós
að
drátturinn
torveldar
ekki
gagnaöflun
um
atriði
sem
máli
skipta.
Ráðherra
setur
reglugerð
um
nánari
framkvæmd
ákvæðisins.
7. gr. Slysatryggðir.
Slysatryggðir samkvæmt lögum þessum eru:
- Launþegar sem starfa hér á landi að undanskildum erlendum ríkisborgurum sem gegna embætti fyrir erlend ríki og erlendu starfsliði slíkra embættismanna. Starf um borð í íslensku skipi eða íslensku loftfari, eða skipi eða loftfari sem er gert út eða rekið af íslenskum aðilum, jafngildir starfi hér á landi samkvæmt þessum lið, enda séu laun greidd hér á landi.
- Nemendur í iðnnámi í löggiltum iðngreinum og nemar í starfsnámi sem stunda nám í heilbrigðisgreinum og raunvísindum og háskólanemar þegar þeir sinna verklegu námi.
- Útgerðarmenn sem sjálfir eru skipverjar.
- Þeir sem vinna að björgun manna úr lífsháska eða vörnum gegn yfirvofandi meiri háttar tjóni á verðmætum.
- Íþróttafólk sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni og er orðið 16 ára. Með reglugerðarákvæði má ákveða nánar gildissvið þessa ákvæðis.
- Atvinnurekendur í landbúnaði sem vinna landbúnaðarstörf, makar þeirra og börn á aldrinum 13–17 ára.
- Atvinnurekendur sem starfa að eigin atvinnurekstri í öðrum atvinnugreinum en um getur í f-lið.
Heimilt
er
að
veita
undanþágu
frá
slysatryggingu
skv.
a-lið
1.
mgr.
ef
hlutaðeigandi
er
sannanlega
tryggður
samkvæmt
erlendri
slysatryggingalöggjöf.
Launþegi
telst
hver
sá
sem
tekur
að
sér
vinnu
gegn
endurgjaldi
án
þess
að
vera
sjálfur
atvinnurekandi
í
því
sambandi,
hvort
sem
um
er
að
ræða
tímakaup,
föst
laun,
aflahlut
eða
greiðslu
fyrir
ákvæðisvinnu.
Maki
atvinnurekanda
og
börn
hans
á
aldrinum
13–17
ára,
sbr.
g-lið
1.
mgr.,
teljast
ekki
launþegar
samkvæmt
þessari
grein
nema
þau
starfi
við
atvinnureksturinn
og
þiggi
laun
fyrir.
8. gr. Trygging við heimilisstörf.
Þeir
sem
stunda
heimilisstörf
geta
tryggt
sér
rétt
til
slysabóta
við
þau
störf
með
því
að
skrá
ósk
þar
að
lútandi
í
skattframtal
í
byrjun
hvers
árs.
Ráðherra
er
með
reglugerð
heimilt
að
skilgreina
nánar
tryggingartímabil
og
hvað
teljist
til
heimilisstarfa.
9. gr. Bætur slysatrygginga almannatrygginga.
Bætur slysatrygginga almannatrygginga eru sjúkrahjálp, dagpeningar, örorkubætur og dánarbætur.
10. gr. Sjúkrahjálp.
Nú veldur bótaskylt slys sjúkleika og vinnutjóni í minnst 10 daga og skal þá greiða nauðsynlegan kostnað vegna lækningar hins slasaða og tjóns á gervilimum eða hjálpartækjum svo sem hér segir:
-
Að fullu skal greiða:
- Læknishjálp sem samið hefur verið um samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
- Sjúkrahúsvist, svo lengi sem afleiðingar slyssins gera hana nauðsynlega, sé hinn slasaði ekki sjúkratryggður samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
- Lyf og umbúðir.
- Viðgerð vegna brots eða löskunar á heilbrigðum tönnum eða vel viðgerðum. Greiðslu fyrir sams konar viðgerðir á lélegri tönnum má takmarka við kostnað sem ætla má að orðið hefði ef þær hefðu verið heilbrigðar.
- Gervilimi eða svipuð hjálpartæki, svo og viðgerð á þeim eða endurnýjun ef viðgerð telst ekki fullnægjandi. Sama gildir um gervitennur.
- Sjúkraflutning með sjúkraflugvél eða sjúkrabíl fyrst eftir slys eða þegar ella verður nauðsynlegt að senda sjúkling með slíkum farartækjum til meðferðar hjá lækni eða á sjúkrahúsi, þó ekki fyrir einstakar ferðir þegar um stundun er að ræða. Sama gildir um flutning með skipi þegar öðrum farartækjum verður ekki við komið.
- Sjúkraþjálfun og orkulækningar.
-
Greiða skal:
- Að hálfu ferðakostnað til læknis með leigubíl, enda sé sjúklingur ekki fær um að ferðast með áætlunarbíl eða strætisvagni. Ekki skal þó greitt fyrir flutning með bifreið manns af sama heimili eða sama bæ né bifreið í eigu venslamanna hins slasaða.
- Að 3/4 kostnað við sams konar ferðir með áætlunarbíl eða -skipi, enda sé um meira en 15 km vegalengd að ræða. Geti sjúklingur ekki ferðast með áætlunarbíl skal greiða ferð með áætlunarflugvél að 3/4.
-
Heimilt er að greiða:
- Hjúkrun í heimahúsum, veitta af vandalausum.
- Styrk upp í kostnað vegna löskunar á tönnum þegar framkvæmdar hafa verið kostnaðarsamar aðgerðir á þeim sem ónýst hafa við slysið.
- Ferðakostnað með áætlunarbíl eða strætisvagni að 3/4 hlutum eða samkvæmt kílómetragjaldi ef áætlunarferðir eða strætisvagnaferðir eru ekki fyrir hendi þegar sjúklingur þarfnast ítrekaðrar meðferðar hjá lækni á sjúkrahúsi eða sjúkrastofnun, svo sem í endurhæfingu eða sjúkraþjálfun, með eða án innlagnar, þótt vegalengd sé skemmri en 15 km, enda séu ferðir fleiri en 30 á sex mánaða tímabili.
Að
svo
miklu
leyti
sem
samningar
samkvæmt
lögum
um
sjúkratryggingar
ná
ekki
til
sjúkrahjálpar
skv.
1.
mgr.
getur
ráðherra
ákveðið
endurgreiðslu
að
nokkru
eða
öllu
leyti
með
reglugerð.
Nú
veldur
slys
ekki
óvinnufærni
í
10
daga
en
hefur
þó
í
för
með
sér
kostnað
sem
um
ræðir
í
þessari
grein
og
má
þá
greiða
hann
að
svo
miklu
leyti
sem
hann
fæst
ekki
greiddur
hjá
sjúkratryggingum.
Kostnaður
vegna
sjúkrahjálpar
sem
fellur
til
þegar
liðin
eru
fimm
ár
eða
meira
frá
slysdegi
greiðist
ekki.
Þó
er
heimilt,
ef
alveg
sérstaklega
stendur
á,
að
greiða
kostnað
sem
fellur
til
í
allt
að
tíu
ár
frá
slysdegi
enda
séu
skýr
læknisfræðileg
orsakatengsl
milli
slyssins
og
kostnaðarins.
Einungis
skal
greiða
nauðsynlegan
kostnað
skv.
1.
mgr.
sem
fellur
til
hér
á
landi
nema
annað
leiði
af
milliríkjasamningum.
Þó
skal
greiða
óhjákvæmilega
sjúkrahjálp
sem
fellur
til
erlendis
ef
slasaði
er
tryggður
samkvæmt
ákvæðum
2.
málsl.
b-liðar
2.
mgr.
5.
gr.
eða
samkvæmt
ákvæðum
laga
um
sjúkratryggingar.
11. gr. Dagpeningar.
Dagpeningar
greiðast
frá
og
með
8.
degi
eftir
að
slys
varð,
enda
hafi
hinn
slasaði
verið
óvinnufær
í
minnst
10
daga.
Dagpeningar
greiðast
þangað
til
hinn
slasaði
verður
vinnufær,
úrskurður
er
felldur
um
varanlega
örorku
hans
eða
hann
deyr,
þó
ekki
lengur
en
52
vikur.
Sjúkratryggingastofnuninni
er
heimilt
að
ákveða
að
dagpeningar
skuli
greiddir
lengur,
einkum
ef
ekki
er
lokið
lækningatilraunum
og
óvíst
er
hvort
um
varanlega
örorku
verður
að
ræða
og
líkur
eru
til
að
afstýra
megi
eða
draga
úr
örorku
með
lengri
bótagreiðslu.
Dagpeningar
eru
1.727
kr.
á
dag
fyrir
hvern
einstakling
og
387
kr.
fyrir
hvert
barn
á
framfæri,
þar
með
talin
börn
utan
heimilis
sem
hinn
slasaði
sannanlega
greiðir
með
samkvæmt
úrskurði
stjórnvalds,
staðfestu
samkomulagi
eða
skilnaðarleyfisbréfi.
Greiðslur
samkvæmt
þessari
grein
mega
ekki
fara
fram
úr
3/4
af
tekjum
bótaþega
við
þá
atvinnu
sem
hann
stundaði
þegar
slysið
varð.
Nú
greiðir
vinnuveitandi
hinum
slasaða
laun
í
slysaforföllum
og
renna
þá
dagpeningagreiðslur
samkvæmt
þessari
grein
til
vinnuveitandans
þann
tíma,
þó
aldrei
hærri
greiðsla
en
sem
nemur
3/4
hlutum
launanna.
12. gr. Örorkubætur.
Ef
slys
veldur
varanlegri
örorku
skal
greiða
hinum
slasaða
mánaðarlegan
slysaörorkulífeyri
eftir
reglum
4.
mgr.
18.
gr.
laga
um
almannatryggingar
eða
örorkubætur
í
einu
lagi
með
þeirri
undantekningu
að
réttur
til
örorkulífeyris
reiknast
frá
16
ára
aldri.
Ef
örorkan
er
50%
eða
meiri
greiðist
hálfur
örorkulífeyrir
fyrir
50%
örorku
og
hækkar
síðan
um
2%
fyrir
hvert
örorkustig
sem
við
bætist
uns
örorkan
nemur
75%,
þá
greiðist
fullur
lífeyrir.
Tekjur
slasaða
skulu
ekki
lækka
örorkulífeyri.
Nú
er
örorkan
metin
meiri
en
50%
og
skal
þá
auk
örorkulífeyris
greiða
lífeyri
vegna
maka
og
barna
yngri
en
18
ára,
sem
voru
á
framfæri
bótaþega
þegar
slys
bar
að
höndum,
eftir
reglum
b-
og
c-liðar
1.
mgr.
13.
gr.
Ef
örorkan
er
75%
eða
meiri
skal
greiða
fullar
bætur
og
gildir
það
bæði
vegna
barna
sem
voru
á
framfæri
bótaþega
þegar
slys
átti
sér
stað,
svo
og
þeirra
sem
hann
framfærir
síðar.
Sé
orkutapið
minna
en
75%
lækka
bæturnar
um
4%
fyrir
hvert
1%
sem
vantar
á
75%
örorku.
Ef
orkutap
er
minna
en
50%
er
sjúkratryggingastofnuninni
heimilt
að
greiða
í
einu
lagi
örorkubætur
sem
jafngilda
lífeyri
hlutaðeigandi
um
tiltekið
árabil
samkvæmt
reglugerð
sem
ráðherra
setur.
Ella
greiðist
lífeyrir
í
hlutfalli
við
örorkuna.
Örorkubætur
greiðast
ekki
ef
orkutap
er
metið
minna
en
10%.
13. gr. Dánarbætur.
Ef slys veldur dauða innan tveggja ára frá því að það bar að höndum skal greiða dánarbætur sem hér segir:
- Ekkja eða ekkill, sem var samvistum við hinn látna eða á framfæri hans, hlýtur bætur, 40.106 kr. á mánuði í 8 ár frá dánardægri hins látna. Bætur samkvæmt þessum staflið falla ekki niður þótt ekkja eða ekkill stofni til hjúskapar að nýju. Nú andast ekkja eða ekkill sem hefur notið bóta samkvæmt ákvæðum þessarar greinar áður en bætur hafa verið greiddar að fullu og skulu eftirstöðvar bótanna greiddar að jöfnu börnum hinna látnu eftir sömu reglum til loka tímabilsins ef á lífi eru, ella til dánarbús hans.
- Barnalífeyri, 322.356 kr. á ári fyrir hvert barn, sbr. að öðru leyti lög um almannatryggingar.
- Barn eldra en 16 ára, sem var á framfæri hins látna vegna örorku þegar slysið bar að höndum, fær bætur sem séu ekki lægri en 500.579 kr. og allt að 1.502.281 kr., eftir því að hve miklu leyti það naut stuðnings hins látna við fráfall hans. Þó greiðast ekki bætur ef örorka er minni en 33%.
Bætur
skv.
a-
og
c-lið
1.
mgr.
skulu
ekki
vera
lægri
en
701.111
kr.
fyrir
hvert
slys.
Nú
lætur
hinn
látni
ekki
eftir
sig
aðstandendur
sem
eiga
rétt
til
bóta
samkvæmt
þessum
stafliðum
og
skal
þá
bæta
slysið
með
701.111
kr.
sem
skiptist
að
jöfnu
milli
barna
hins
látna
ef
á
lífi
eru,
en
ella
til
dánarbús
hans.
Um
fósturbörn
og
fósturforeldra
gildir
sama
og
um
börn
og
foreldra.
Frá
dánarbótum
sem
greiddar
eru
vandamönnum
ber
að
draga
þær
örorkubætur
sem
greiddar
hafa
verið
í
einu
lagi
skv.
4.
mgr.
12.
gr.
vegna
sama
slyss.
14. gr. Samspil og skörun bóta.
Enginn getur samtímis notið fleiri en einnar tegundar greiddra bóta samkvæmt lögum þessum og lögum um almannatryggingar vegna sama atviks eða fyrir sama tímabil. Saman mega þó fara:
- Bætur til ekkju eða ekkils skv. a-lið 1. mgr. 13. gr. og allar aðrar bætur.
- Barnalífeyrir og dagpeningar.
- Slysadagpeningar og ellilífeyrir.
- Aðrar bætur ef svo er fyrir mælt í lögum þessum eða lögum um almannatryggingar.
Nú
nýtur
umsækjandi
um
slysadagpeninga
annarra
lægri
bóta
samkvæmt
lögum
þessum,
lögum
um
almannatryggingar
eða
lögum
um
sjúkratryggingar,
sem
veittar
eru
til
langs
tíma,
og
skulu
þá
dagpeningar
nema
mismuninum.
Njóti
umsækjandi
þegar
elli-
eða
örorkulífeyris
samkvæmt
lögum
um
almannatryggingar
kemur
ekki
til
greiðslu
slysalífeyris
fyrir
sama
tímabil.
Eigi
bótaþegi
rétt
á
fleiri
tegundum
bóta
en
einni
samkvæmt
lögum
þessum
eða
lögum
um
almannatryggingar
sem
ekki
geta
farið
saman
skal
greiða
honum
hærri
eða
hæstu
bæturnar.
Um
samspil
og
skörun
bóta
samkvæmt
þessum
lögum
og
lögum
um
almannatryggingar
gilda
að
öðru
leyti
ákvæði
48.
gr.
laga
um
almannatryggingar.
15. gr. Ákvörðun bóta.
Allar
umsóknir
skulu
ákvarðaðar
svo
fljótt
sem
kostur
er
á
og
skulu
bætur
reiknaðar
frá
þeim
degi
þegar
umsækjandinn
hefur
uppfyllt
skilyrði
til
bótanna.
Mánaðarlegar
bætur
skv.
12.
og
13.
gr.
reiknast
þó
frá
fyrsta
degi
næsta
mánaðar
eftir
að
bótaréttur
er
fyrir
hendi
og
falla
niður
í
lok
þess
mánaðar
er
bótarétti
lýkur.
Bætur
vegna
sjúkrahjálpar,
dagpeninga
og
dánarbætur
skal
aldrei
ákvarða
lengra
aftur
í
tímann
en
tvö
ár
frá
því
að
umsókn
og
önnur
gögn
sem
nauðsynleg
eru
til
að
unnt
sé
að
taka
ákvörðun
um
bótarétt
og
fjárhæð
bóta
berast
sjúkratryggingastofnuninni.
Um
greiðslur
slysalífeyris
aftur
í
tímann
fer
samkvæmt
lögum
um
fyrningu
kröfuréttinda.
Ákvarðaðar
bætur
falla
niður
ef
þær
eru
ekki
sóttar
innan
tólf
mánaða,
en
ákvarða
má
bætur
á
ný
ef
rökstudd
umsókn
berst.
Grundvöll
bótaréttar
má
skoða
hvenær
sem
er
og
færa
til
samræmis
við
þær
breytingar
sem
orðið
hafa.
III. KAFLI Ýmis ákvæði.
16. gr. Tekjur.
Útgjöld
slysatrygginga
skulu
borin
af
tekjum
ríkissjóðs
af
tryggingagjaldi
og
iðgjöldum
skv.
3.
mgr.
Þá
skal
árlega
ákveða
í
fjárlögum
framlag
sem
standa
skal
undir
kostnaði
af
bótum
vegna
þeirra
sem
um
getur
í
e-lið
1.
mgr.
7.
gr.
Sjúkratryggingastofnunin
skal
ár
hvert
gera
áætlun
um
bótagreiðslur
og
rekstrarkostnað
slysatrygginga
næsta
almanaksár.
Iðgjöld
útgerðarmanna
fiskiskipa
vegna
slysatrygginga
sjómanna
skulu
vera
0,65%
af
samanlögðum
launum
og
aflahlut
sjómanna
sem
starfa
hjá
þeim
hverju
sinni.
Iðgjöld
þessi
skulu
ásamt
dagpeningum
skv.
6.
mgr.
21.
gr.
standa
undir
greiðslu
launa
og/eða
aflahlutar
skv.
2.
mgr.
21.
gr.
og
rekstrarkostnaði
slysatrygginga
vegna
framkvæmdar
sjúkratryggingastofnunarinnar
við
tryggingu
þessa.
Iðgjöld
þeirra
sem
stunda
heimilisstörf
skv.
8.
gr.
skulu
ákveðin
þannig
að
þau
standi
undir
kostnaði
við
trygginguna
og
rekstrarkostnaði
sjúkratryggingastofnunarinnar
vegna
framkvæmdarinnar.
17. gr. Iðgjöld.
Iðgjöld
skv.
16.
gr.
skal
ríkisskattstjóri
leggja
á
með
tekjuskatti
og
færa
þau
á
skattskrá,
sbr.
98.
gr.
laga
nr.
90/2003,
um
tekjuskatt,
og
skulu
ákvæði
99.
gr.
þeirra
laga
og
ákvæði
laga
nr.
30/1992,
um
yfirskattanefnd,
gilda
um
iðgjöld
eftir
því
sem
við
á.
Ákvæði
laga
nr.
113/1990,
um
tryggingagjald,
skulu
eiga
við
um
gjaldstofn,
gjaldskyldu,
greiðslutímabil,
álagningu
og
innheimtu
iðgjalds
útgerðarmanna
fiskiskipa
vegna
slysatrygginga
sjómanna.
Að
tekjuári
liðnu
skal
fara
fram
endanleg
ákvörðun
iðgjaldsins
í
samræmi
við
launaframtal
og
skal
iðgjaldið
sérgreint
í
álagningarskrá
og
skattskrá.
Ríkisskattstjóri
skal
halda
skrá
yfir
gjaldskylda
aðila
og
skal
eftir
atvikum
leita
staðfestingar
á
iðgjaldi
útgerðaraðila
þegar
greiðsluskylda
sjúkratryggingastofnunarinnar
er
ákvörðuð.
Gjalddagar
iðgjalda
skulu
ákveðnir
í
reglugerð.
18. gr. Innheimta.
Iðgjöld til slysatrygginga skulu innheimt af innheimtumönnum ríkissjóðs og sveitarsjóða eða sérstökum innheimtustofnunum. Ákvæði laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þar á meðal um dráttarvexti og fjárnámsrétt, gilda um innheimtu iðgjalda.
19. gr. Iðgjöld útgerðarmanna.
Iðgjöld útgerðarmanna fiskiskipa vegna slysatrygginga sjómanna skv. 16. gr. skulu hvíla sem lögveð á hlutaðeigandi skipum og ganga fyrir öllum öðrum veðum en lögveðum fyrir gjöldum ríkissjóðs.
20. gr. Frjálsar slysatryggingar.
Heimilt
er
sjúkratryggingastofnuninni
að
taka
að
sér
frjálsar
slysatryggingar.
Skal
þá
jafnan
gefa
út
vátryggingarskírteini.
Enn
fremur
getur
stofnunin
með
samþykki
ráðherra
tekið
að
sér
ábyrgðartryggingar.
Ráðherra
ákveður
með
reglugerð
nánari
tilhögun
á
tryggingum
samkvæmt
þessari
grein,
þar
á
meðal
að
hve
miklu
leyti
skuli
endurtryggja
þá
áhættu
sem
sjúkratryggingastofnunin
tekur
á
sig.
21. gr. Viðbótartrygging útgerðarmanna fiskiskipa.
Útgerðarmenn
fiskiskipa
skulu
tryggja
áhættu
vegna
bótaskyldra
slysa
samkvæmt
lögum
þessum
og
1.
mgr.
36.
gr.
sjómannalaga
hjá
sjúkratryggingastofnuninni.
Sjúkratryggingastofnunin
greiðir
útgerðarmönnum
fjárhæð
sem
svarar
til
fullra
launa
og/eða
aflahlutar
sjómanna
í
allt
að
tvo
mánuði.
Útgerðarmenn
skulu
greiða
iðgjald
skv.
16.
gr.
Útgerðarmenn
sem
þess
óska
geta
sagt
upp
tryggingu,
sbr.
1.
mgr.,
fyrir
1.
nóvember
ár
hvert
vegna
næsta
árs
á
eftir.
Tilkynning
um
uppsögn
skal
berast
sjúkratryggingastofnuninni.
Eftir
að
uppsögn
hefur
öðlast
gildi
eiga
útgerðarmenn
ekki
rétt
á
greiðslum
vegna
launa
eða
aflahlutar
í
forföllum
vegna
slysa
en
njóta
slysatrygginga
almennra
launþega.
Halda
skal
tryggingum
samkvæmt
þessari
grein
reikningslega
aðskildum
frá
annarri
starfsemi
sjúkratryggingastofnunarinnar.
Dagpeningar
skv.
11.
gr.
skulu
renna
til
sjúkratryggingastofnunarinnar
þann
tíma
sem
greiðslur
launa
og
aflahlutar
eiga
sér
stað.
22. gr. Réttindi milli landa.
Þegar
milliríkjasamningar
sem
Ísland
er
aðili
að
kveða
á
um
gagnkvæm
réttindi
til
slysatrygginga
almannatrygginga
skulu
þeir
sem
falla
undir
íslenska
löggjöf
samkvæmt
ákvæðum
samninganna
öðlast
réttindi
samkvæmt
lögum
þessum.
Ákvæði
1.
mgr.
eiga
einnig
við
um
einstaklinga
sem
eru
sjúkratryggðir
skv.
1.
mgr.
11.
gr.
laga
um
sjúkratryggingar
og
starfa
erlendis
fyrir
aðila
sem
hefur
aðsetur
og
starfsemi
á
Íslandi,
enda
sé
tryggingagjald
greitt
hér
á
landi
af
launum
hans,
sbr.
lög
um
tryggingagjald.
Ráðherra
setur
reglugerð
um
nánari
framkvæmd
greinarinnar,
m.a.
um
heimild
til
að
draga
frá
bótum
samkvæmt
lögum
þessum
bætur
samkvæmt
erlendri
löggjöf
fyrir
sama
tímabil
og
bætur
eru
greiddar
fyrir
hér
á
landi.
23. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að kveða á um nánari framkvæmd laga þessara í reglugerðum.
24. gr. Innleiðing.
Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð almannatryggingareglur Evrópusambandsins eins og þær eru felldar inn í VI. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, með síðari breytingum, sbr. einnig ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2011 frá 1. júlí 2011 sem fellir undir samninginn reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa, með síðari breytingum, og nr. 987/2009 um framkvæmd hennar. Reglugerðir Evrópusambandsins, sem teknar verða upp í samninginn og fela í sér breytingar eða viðbætur við þær reglugerðir, er einnig heimilt að innleiða með reglugerð. Sama á við um almannatryggingareglur stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.
25. gr. Gildistaka og lagaskil.
Lög
þessi
öðlast
gildi
1.
janúar
2016.
Ákvæði
laga
um
sjúkratryggingar
gilda
um
slysatryggingar
eftir
því
sem
við
á,
m.a.
um
málsmeðferð,
ákvarðanir
og
greiðslur
bóta,
þagnarskyldu,
meðferð
persónuupplýsinga,
stjórnsýslukærur
og
hækkun
bóta.
Ákvæði
laga
um
almannatryggingar
gilda
eftir
því
sem
við
á
um
réttarstöðu
sambúðarfólks,
greiðslur
til
þriðja
aðila,
fangelsisvist,
gæsluvarðhald
og
aðra
dvöl
á
stofnun
samkvæmt
úrskurði,
dvöl
á
sjúkrahúsi
og
upplýsingaskyldu
heilbrigðisstarfsmanna,
svo
og
um
framsal
og
veðsetningu
bótakrafna,
kyrrsetningu
og
fjárnám.
Um
greiðslur
til
viðbótar
örorkulífeyri
skv.
12.
gr.
fer
samkvæmt
lögum
um
almannatryggingar
og
lögum
um
félagslega
aðstoð.
26. gr. Breyting á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum: Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 4. mgr. 79. gr. laganna kemur: Sjúkratryggingastofnunin.
Ákvæði til bráðabirgða.
Endurskoða skal lög þessi innan tveggja ára frá gildistöku þeirra.
Gjört á Bessastöðum, 8. júlí 2015.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Kristján Þór Júlíusson.
A deild - Útgáfud.: 10. júlí 2015