Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Flugmál

Undirritunardagur

10. desember 2024

Útgáfudagur

27. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1619/2024

10. desember 2024

AUGLÝSING

um fjárhæðir Montreal-samningsins.

Alþjóðasamningur um samræmingu tiltekinna reglna varðandi loftflutninga milli landa (e. Convention for the Unification of Certain Rules for International Carriage by Air) sem gerður var í Montreal 1999 hefur öðlast lagagildi, sbr. XVII. kafli laga um loftferðir nr. 80/2022.

Með vísan til 24. gr. samningsins hefur Alþjóðaflugmálastofnunin, sem er vörsluaðili samningsins, tilkynnt um breytingu á fjárhæðum samningsins. Upphæðirnar eru gefnar upp í sérstökum dráttarréttindum (SDR) og eru sem hér segir:

Montreal-samningurinn frá 1999 Upphafleg fjárhæð samningsins (SDR) Endurskoðuð fjárhæð í SDR (2019) Endurskoðuð fjárhæð í SDR (2024)
21. gr. 100.000 128.821 151.880
1. mgr. 22. gr. 4.150 5.346 6.303
2. mgr. 22. gr. 1.000 1.288 1.519
3. mgr. 22. gr. 17 22 26

Endurskoðaðar fjárhæðir Montreal-samningsins frá 2024 taka gildi frá gildistöku auglýsingu þessarar.

Auglýsing þessi er sett með vísan til 2. mgr. 212. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 10. desember 2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024

Tengd mál