Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál, Flutningar

Undirritunardagur

6. september 2019

Útgáfudagur

23. september 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 834/2019

6. september 2019

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.

1. gr.

Við 2. mgr. 38. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2018/1846/ESB frá 23. nóvember 2018 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi á landi og skipgengum vatnaleiðum í því skyni að laga viðaukana að framförum á sviði vísinda og tækni sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 287-288.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 60. gr. og 5. mgr. 73. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. september 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Jónas Birgir Jónasson.

B deild - Útgáfud.: 23. september 2019

Tengd mál