Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

11. janúar 2018

Útgáfudagur

26. janúar 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 76/2018

11. janúar 2018

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2018.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2018, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1155/2017, er til 31. maí 2018 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@rsk.is fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2017 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2016, og að álögð gjöld 2018 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2017.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2018 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2018 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1155/2017 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 11. janúar 2018.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2018

Tengd mál